151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[20:25]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Það hefur verið um margt athyglisvert og áhugavert að hlusta á þá umræðu sem hér hefur farið fram um frumvarp til laga um úthlutun tollkvóta. Í byrjun langar mig að staldra við málflutning tveggja hv. þingmanna sem ég hlustaði á með mikilli athygli. Það var í fyrsta lagi bændahöfðinginn og hv. 1. þm. Norðvest., Haraldur Benediktsson. Ég vona að ég megi segja það, herra forseti, að mér fannst vera hálfgerður hundur í honum. Af einhverjum ástæðum hafði hann horn í síðu mjög góðrar breytingartillögu sem við Miðflokksmenn, eða tveir af okkar ágætu þingmönnum, höfum lagt hér fram um að fresta útgáfu tollkvóta. Ég er nú svo barnalegur, herra forseti, að ég hélt að bændahöfðinginn myndi stökkva hæð sína í herklæðum og gleðjast yfir því að slík tillaga væri komin fram en það voru bara ónot í hv. þingmanni yfir þessu. Kannski er það vegna þess að hann hefði viljað kveða þessa Lilju sjálfur hefði hann fengið til þess frið og stuðning. Það kann vel að vera. Kannski veldur það honum ógleði. Ég held að það væri miklu nær fyrir hv. þm. Harald Benediktsson að koma til liðs við okkur Miðflokksmenn í þessu máli. Eins og hefur reyndar verið rakið í nokkrum ræðum er tillagan, sem tveir af okkar ágætu þingmönnum leggja fram og Miðflokkurinn allur stendur á bak við, lögð fram vegna ástandsins sem nú ríkir vegna Covid-19 veirunnar, ekki bara hér heldur um gervalla heimsbyggðina.

Ég hlustaði líka með athygli á annan hv. þingmann og það var hv. 7. þm. Suðvest., Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem er líka formaður Viðreisnar. Hún veifaði að vanda fána frelsis og vildi samkeppni. Nú ræði ég bæði sem fulltrúi neytenda og gamall bændavinur, hafandi rekið það sem heitir í dag afurðastöð og hét þá sláturhús. Ég hef verið að vinna fyrir bændur mjög lengi og þekki kjör þeirra þokkalega. Allt voru þetta gamalkunnug stef sem hv. þingmaður, formaður Viðreisnar, bar hér fram. Vandamálið er þetta, herra forseti: Samkeppnisást og frelsislöngun Viðreisnar endar á ákveðnum stað, hún endar við afurðastöðvar eða svokallaða milliliði eins og formaður Viðreisnar kallaði þá starfsemi. Þar endar samkeppnisástin og frelsislöngunin. Þessi ágæti hv. þingmaður, formaður Viðreisnar, segir að hún vilji endilega bæta kjör bænda — og það er virðingarvert og ég trúi því og treysti því — með því að taka í gegn svokallaða milliliði eða afurðastöðvar. En þessi hv. þingmaður er alveg til í að skottast út í búð sem hefur 60% markaðshlutdeild. Hún veifar ekki samkeppnisfánanum þar og hún talar ekki um frelsislöngun sína þar. Ef það væri einhver meining á bak við orð Viðreisnar um samkeppni myndi flokkurinn náttúrlega leggja fram alvörufrumvarp um breytingu á samkeppnislögum vegna samþjöppunar á smásölumarkaði og þar kæmi fram alvörusamkeppnisást og frelsislöngun. En því er ekki til að dreifa, herra forseti, það gerist ekki.

Ég ætla aftur að segja, herra forseti, ég hef sagt það nokkrum sinnum í þessum ræðustól, að ég á enn eftir að hitta kartöflubónda sem þorir að koma fram undir nafni og segja frá því hvaða kjör hann hefur hjá stórmarkaði í Reykjavík. Ég á enn þá eftir að hitta hann. Og svo tala menn um milliliðina. Það vill svo til að ég er ekki hér sem einhver sporgöngumaður eins fyrirtækis frekar en annars en það kom fram í skýrslu sem Hagfræðistofnun vann að það að taka mjólkuriðnaðinn á Íslandi undan samkeppnislögum hefur valdið því að um 3 milljarðar kr. verða til í sparnað á ári sem skiptist á milli bænda og neytenda. Ögmundur Jónasson, fyrrverandi þingmaður, sá ágæti og grandvari maður, orðaði þetta betur en margir aðrir sem ég hef heyrt til. Það er svo einfalt, þarna verða til einhverjir 3 milljarðar á ári og þeir skiptast á milli neytenda og bænda. Það er hagurinn af því að mjólkuriðnaðurinn getur unnið saman sem ein heild.

En margir stökkva fram núna og finnst að það sem hér er lagt til, líka það sem hæstv. landbúnaðarráðherra leggur til, sé ávísun á verðhækkun til neytenda. Þar á meðal er formaður Neytendasamtakanna sem sendi okkur alþingismönnum afskaplega kurteislegan og elskulegan póst. Ég viðurkenni það, herra forseti, að ég var ekki búinn að svara póstinum og það er kannski ágætt að ég geri það bara hér og nú. Ég veit að Neytendasamtökin fylgjast vel með og mér þætti vænt um að formaður Neytendasamtakanna sendi okkur annan póst með upplýsingum um hversu mikið innfluttar landbúnaðarafurðir lækkuðu síðast þegar slakað var á tollkvótainnflutningi til Íslands. Mér þætti mjög vænt um að fá upplýsingar um verðþróun á t.d. innfluttum nautalundum eða einhverju slíku fyrir og yfir þann tíma og þangað til núna þegar við erum að setja hömlur á tollkvóta.

Við höfum líka fengið skot annars staðar frá. Ég sá bara fyrir tilviljun þegar ég var á leið upp í þennan ræðustól að framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda sakaði þingmenn um að ganga erinda einhverra ákveðinna aðila í landbúnaði. Ég segi aftur, herra forseti: Ég er ekki kominn hingað til að vera sporgöngumaður eins fyrirtækis eða tveggja í landbúnaði. Það væri hins vegar mjög gott ef framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segði okkur um hvað þessir ágætu neytendur voru að hugsa sem hafa flutt inn ost núna í nokkra mánuði og misseri á röngum tollflokkum. Það væri mjög fróðlegt að komast að því og nú er þetta mál til skoðunar, sem betur fer. Ég kem að þessu betur aðeins seinna en það væri fróðlegt fyrir alla sem koma að málinu, ekki síst fyrir okkur sem eigum að vera að ganga erinda einhverra óvissra manna eða fyrirtækja eða félaga, ef framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda gæti upplýst okkur um hvaða hagsmuni var verið að verja þegar þessi vara var flutt inn á röngum tollflokki, því að hún var sannarlega flutt inn á röngum tollflokki. Ef svo er ekki hefur orðið bylting á neytendamarkaði á síðustu tveimur mánuðum. Ég veit ekki hvort forseta er þetta kunnugt en það vill svo til að mánuðina janúar til ágúst voru flutt inn 30–50 tonn á mánuði af osti sem ekki bar toll. Svo vill til að um leið og byrjað var að rannsaka innflutning á þessari afurð steinhætti hún að seljast. Þetta er líklega mesta bylting í neysluvenjum sem ég hef heyrt um mjög lengi. Allt í einu voru þessi 30 tonn á mánuði orðin tvö tonn. Svona brugðust nú neytendur við, eða hvað? Nei, herra forseti, ég held að það sé ekki málið. Ég held hreinlega að þarna hafi menn verið teknir með höndina ofan í kökudunknum og hafi séð að sér þegar að þeim var komið við það.

Það er full ástæða til að fara gaumgæfilega yfir þennan innflutning og það vill svo til að sá sem hér stendur er nýlega búinn að leggja fram fyrirspurn og hefur sá hinn sami sopið ýmsa fjöruna varðandi fyrirspurnir til ráðherra, bæði fyrr og síðar. Í þeirri fyrirspurn bið ég um samanburð á útgefnum tollkvóta á tilgreindum landbúnaðarafurðum og innflutningi á sömu vörum til að sjá hvernig menn eru að uppfylla þá tollkvóta sem hafa verið gefnir út undanfarin ár og misseri. Satt að segja bíð ég nokkuð spenntur eftir að sjá svar við þessari fyrirspurn og ég vona að það komi innan þriggja ára. Ég hef nú upplifað það að þurfa að eltast við svör við fyrirspurnum í þrjú ár. Ég vona að þetta komi fyrr vegna þess að við þurfum að vita þetta, herra forseti. Og við þurfum að vita hvort eitthvað er til í því að hingað hafi verið flutt kjöt á beini, t.d. nautakjöt, þar sem fluttir hafa verið inn hreinir vöðvar. Vonandi verður það rannsakað, herra forseti. Ég held satt að segja að þegar maður flytur inn nautakjöt á beini sé kjöthlutfallið á móti beinum 60 á móti 40 en þetta er eftir minni sagt. Ef það hafa verið brögð að því að hingað hafi verið fluttir hreinir vöðvar sem kjöt á beini þá munar um 40% í innfluttu magni. Nú er ég farinn að tala um ástandið sem var hér á landinu áður en Covid kom til. Ef það er svo, eins og haldið hefur verið fram, að hingað hafi verið flutt kjöt með þessum hætti segir það sig sjálft að frystigeymslur þessara sömu innflytjenda eru nokkuð bólgnar núna af slíku kjöti sem mér býður í grun að þeir muni henda inn á markaðinn — af því að við segjum ekki „dömpað“, herra forseti — með undirboðum. Maður býst við að það gerist.

Þetta var ástandið fyrir Covid-vandamálið. Það var verið að flytja hingað inn vörur með rangri skráningu með alveg fullkomnum hagnaðarauka fyrir þá sem fluttu inn. Bara svo að ég nefni dæmi, vegna þess að það hefur komið fram opinberlega, hafa verið flutt hingað inn síðustu sirka 12–15 mánuði 300 tonn af osti á rangri tollskráningu. Það hefur komið fram opinberlega að um sé að ræða tekjumissi fyrir ríkissjóð upp á 300 millj. kr. Það hefur komið fram opinberlega að um sé að ræða ársframleiðslu 10–15 kúabúa. Fyrir utan það var osturinn ætlaður á flatbökur. Ég geri ekki ráð fyrir að þær hafi verið seldar með 300 millj. kr. afslætti á síðustu 12–18 mánuðum, herra forseti. Hafi þetta verið flutt inn með þessum hætti er um að ræða þrenns konar brot; það er brot gegn ríkissjóði, það er brot gegn bændum og það er brot gegn neytendum.

Þetta er ástandið eins og það var áður en Covid kom til. Hvað er búið að gera eftir að Covid-ástandið kom til? Jú, öll nágrannaríki okkar styrkja landbúnað sinn. Það er rétt að halda því til haga að síðasta tala sem ég sá um stuðning Evrópusambandsins við landbúnað sinn var 83 milljarðar dala á ári. Þetta er stærsti einstaki útgjaldapóstur Evrópusambandsins til nokkurs hlutar. Þeir sem stunda þennan atvinnuveg hér eru því að keppa við niðurgreiddan ríkisstyrktan landbúnað. Það eru ekki margar greinar sem ég man eftir sem eru í beinni erlendri samkeppni sem nýtur ríkisstyrkja. Ég man ekki eftir því. En hvað höfum við Íslendingar gert akkúrat núna á þessum síðustu og verstu tímum fyrir fyrirtæki sem eru í alþjóðlegri samkeppni? Jú, við höfum styrkt þau mjög verulega. Þá vil ég t.d. taka til fyrirtæki eins og Icelandair og ég er svo sannarlega sammála því, herra forseti, að slíkt eigi að gera og ef ég man rétt hef ég stutt allar tillögur sem hafa komið fram hér í þessum sal um að það fyrirtæki og önnur fyrirtæki sem eru í alþjóðlegum samskiptum eða viðskiptum séu aðstoðuð með einhverjum hætti. Það er alveg sjálfsagt mál, enda kemur sólin vonandi upp og við getum haldið lífi okkar áfram nokkuð eðlilega.

Nú er röðin komin að landbúnaði, þ.e. að styðja við hann núna þegar við erum komin 11 mánuði inn í þennan faraldur og höfum hingað til ekki lyft fingri til að styðja við hann, ekki örðu. Með því að styðja landbúnað erum við ekki bara að styðja bændur og við erum ekki bara að styðja afurðastöðvar, við erum náttúrlega að styðja neytendur. Við erum að gera fólki kleift að kaupa hágæðavöru á góðu verði og við erum að tryggja að hér í landinu sé matvælaöryggi. Það er nú þannig að þegar talað var um matvælaöryggi hér áður fyrr hnussaði í mönnum þangað til t.d. í hruninu 2008 þegar menn uppgötvuðu allt í einu að við vorum á nippinu að eiga fyrir innfluttum lyfjum en við áttum mat vegna þess að við framleiddum mat. Og þegar ástandið er orðið eðlilegt í heiminum þá erum við ekki bara að framleiða mat fyrir okkur sjálf. Það er búið að standa upp úr hverjum þingmanninum á fætur öðrum undanfarnar vikur að við eigum að stórauka framleiðslu á matvælum, sem er alveg hárrétt. Auðvitað eigum við að gera það. Heimsbyggðin þarf að borða og einhvern tímann sést til sólar aftur. Ætlum við að vera búin að ganga þannig frá hér að landbúnaðurinn sé algerlega á hnjánum og sé ekki í færum til að nýta sér ástandið þegar það batnar? Ekki sá sem hér stendur, herra forseti. Það kemur ekki til. Og ekki Miðflokkurinn, hann kemur ekki til með að standa að því, alls ekki.

Ég segi aftur: Ef það er svo að einhverjir þingmenn séu með böggum hildar yfir því sem þeir kalla yfirboð Miðflokksins í þessu máli þætti mér vænt um að þeir hugsuðu sig aðeins um, læsu tillöguna sem hér er sett fram og kæmu til liðs við hana í staðinn fyrir að vera með hundshaus og tala um að Miðflokksmenn séu engir frelsandi englar fyrir bændur. Sá sem hér stendur er ekki alveg svoleiðis vaxinn að hann geti fallið í þann flokk, enda skiptir það ekki máli. Það sem skiptir máli er að standa með þessari atvinnugrein í gegnum þann skafl sem hefur staðið yfir í 11 mánuði og mun standa aðeins lengur, til að íslenskir bændur verði í færum þegar sólin kemur upp á ný til að taka til við því sem þeir gera best, að framleiða úrvalsvöru á góðu verði til hagsbóta fyrir alla. Þetta mál snýst um það, herra forseti. Til þess er þetta mál lagt fram, til þess er breytingartillaga Miðflokksins lögð fram og ég skora á þingmenn að fylkja sér um hana.