vegalög.
Forseti. Ég mæli fyrir örstuttu og litlu máli sem lætur ekki mikið yfir sér og hv. umhverfis- og samgöngunefnd hefur sameinast um að flytja saman. Það hljóðar svo, með leyfi forseta:
„1. gr. Í stað ártalsins „2020“ í ákvæði til bráðabirgða í lögunum kemur: 2021.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.“
Forseti. Eins og þetta ber með sér er hér aðeins verið að breyta tímasetningu á bráðabirgðaákvæði í vegalögum. Við settum fyrir u.þ.b. ári síðan bráðabirgðaákvæði þar sem við gáfum lengri frest til þess að semja um hvernig svokallaðir skilavegir eru færðir frá ríki til sveitarfélaga. Samkvæmt vegalögum skal Vegagerðin sjá um gerð og viðhald þjóðvega sem ætlaðir eru almenningi til frjálsrar umferðar en sveitarfélög skulu hafa umsjón með sveitarfélagsvegum, þ.e. vegum sem teljast ekki þjóðvegir. Þegar vegalög voru sett 2007 var skilgreiningum á stofnvegum, sem eru ein tegund þjóðvega, breytt sem leiddi til þess að tiltekinn hluti vega sem áður höfðu talist til þjóðvega í þéttbýli féll utan skilgreiningarinnar og heyrði því ekki lengur undir Vegagerðina. Síðan þetta gerðist árið 2007 hafa samningar verið í gangi um að færa þessa vegi frá Vegagerðinni til sveitarfélaga og heildarlengd þessara vega og vegarkafla telst vera 55,6 km. Fyrir ári síðan gerðum við þetta sama, settum bráðabirgðaákvæði og gáfum deiluaðilum eitt ár til að ná samningum. Það var gert með vísan til viljayfirlýsingar sem þá stóð til að ráðuneytið, Vegagerðin, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samband íslenskra sveitarfélaga myndu undirrita. Viljayfirlýsingin hefur ekki verið undirrituð vegna ágreinings um efni hennar en viðræður hafa staðið yfir um þessi mál. Alls er um að ræða núna 39,2 km af skilavegum og af þeim eru 25,7 á höfuðborgarsvæðinu.
Forseti. Við fengum á fund nefndarinnar til okkar fulltrúa frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Vegagerðinni og frá ráðuneytinu. Öllum bar saman um að viðræður gengju nokkuð vel. Það væru þættir sem stæðu út af og þetta þyrfti einfaldlega bara meiri tíma og þess vegna sameinaðist nefndin um að flytja þetta mál.
Verði frumvarpið að lögum mun Vegagerðin áfram um sinn standa straum af kostnaði við veghald vega sem færðust úr flokki stofnvega þegar lögin tóku gildi þar til yfirfærslunni er lokið en þó ekki lengur til ársloka 2021 og aðilar hafa þá þann tíma til að semja um þessa yfirfærslu.
Mig langar í lokin að þakka sérstaklega sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og samtökum þeirra fyrir að hnippa í sína þingmenn og benda á þetta og eins Vegagerðinni og ráðuneytinu fyrir að bregðast hratt og skjótt við. Þetta er mjög einfalt mál, forseti. Aðilar fengu frest til áramóta til að ganga frá málinu. Það tókst ekki alveg og þeir þurfa lengri frest og þetta gengur út á að veita þeim frest út næsta ár.