aurskriður á Seyðisfirði.
Forseti. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra hvort ríkisstjórnin hafi áform um að bregðast við vegna skriðufalla á Seyðisfirði með aðstoð við íbúa byggðarlagsins, aðstoð við hreinsun eða ekki hvað síst áformum um varnaraðgerðir til að koma í veg fyrir sams konar skriður á sömu slóðum. Ég vek athygli hæstv. ráðherra á því að í fyrrasumar birti Veðurstofan uppfært hættumat fyrir akkúrat þetta svæði, Botnahlíðina, þar sem skriðurnar féllu, og varaði við því að þarna væru þykkari laus jarðlög en gert hefði verið ráð fyrir og þau gætu losnað og hvatti til að farið yrði í varnarframkvæmdir. Menn hafa nefnt þá leið að drena grunnvatn, draga það niður til að draga úr líkum á skriðuhættu. Auk þess er saga rannsókna vegna ofanflóðavarna á Seyðisfirði auðvitað mjög löng og sama má svo sem segja um fleiri byggðarlög. Það má þá fylgja með spurningunni hvort hæstv. ráðherra telji ekki tímabært að hraða framkvæmdum, láta þessa atburði verða okkur áminningu um að hraða framkvæmdum við slíkar varnir og jafnvel að þess sjáist þá einhver merki núna í lok fjárlagaumræðunnar því að ofanflóðasjóður hefur fjármagn til að ráðast í framkvæmdir og á þessum tímum er, eins og við höfum mikið rætt hér, tími til að ráðast í framkvæmdir.
Ég spyr hæstv. ráðherra: Hefur ríkisstjórnin uppi áform um að bregðast við vegna þessara náttúruhamfara og með hvaða hætti hyggst hún gera það?