151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

aurskriður á Seyðisfirði.

[10:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að segja að það er mildi að ekki skyldi hafa farið verr í þessu tilviki. Almennt tel ég að það hafi komið fram með mjög skýrum hætti frá ríkisstjórninni eftir flóðin á Flateyri og yfirferð yfir veikleika í innviðum okkar að við hyggjumst fjármagna það að fullu, sem þarf á komandi árum í samræmi við áætlanir um uppbyggingu. Það hefur ekki verið þannig lengi, reyndar ekki frá því að þessum sjóðum var komið á fót. Með því hefur ríkið í raun verið að taka til sín tekjustofna umfram tilefni þar sem sjóðirnir hafa ekki fengið fjárheimildir að fullu til þess að sinna þeim verkefnum sem þeir eru að lögum stofnaðir til. Þar sem þessi málefni heyra ekki beint undir mitt ráðuneyti er ég ekki í stakk búin til að greina nákvæmlega frá stöðu innan þeirra stofnana sem ýmist heyra hér undir umhverfisráðherra eða dómsmálaráðherra. En ég get fullvissað hv. þingmann um að ríkisstjórnin styður þær stofnanir sem hér eiga snertifleti við málið til þess að forgangsraða í þágu íbúanna á Seyðisfirði og til að hugsa til lengri framtíðar þannig að menn geti starfað og búið á svæðinu án ótta við að svona atburðir endurtaki sig. Það er nú kannski það sem við höfum sem frumskyldu í þessum málum og urðum svo áþreifanlega vör við síðast á Flateyri.