151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

aurskriður á Seyðisfirði.

[10:37]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Á Seyðisfirði, eins og á nokkrum öðrum stöðum, er skortur á ofanflóðavörnum þegar farinn að standa byggðarlögunum verulega fyrir þrifum því að það skortir byggingarland og jafnvel búið að skipuleggja nýbyggingarsvæði. Það er ekki hægt að ráðast í framkvæmdir og ekki hægt að byggja upp byggðarlögin vegna skorts á þessum vörnum og því hvet ég hæstv. ráðherra til að beita sér í ríkisstjórnin fyrir því að þetta gangi sem hraðast fyrir sig. En ég ítreka engu að síður spurningu mína um Seyðisfjörð sérstaklega og hrósa Veðurstofunni fyrir að hafa í fyrrasumar fundið út úr þessu, bent á að þarna væri hætta sem var að byggjast upp og hvatt til aðgerða. Ég spyr: Er ekki ástæða til að bregðast við þeim aðgerðum sem var kallað eftir þegar í fyrrasumar og nýta þá hugsanlega þær leiðir sem bent hefur verið á varðandi drenun og slíkt, byrja á því? Einnig spyr ég hæstv. ráðherra hvort ríkisstjórnin muni með (Forseti hringir.) fjárveitingum aðstoða byggðarlagið á einhvern hátt vegna þessara atburða.