aurskriður á Seyðisfirði.
Virðulegi forseti. Ég lít á þetta sem hvatningu frá hv. þingmanni til þess að taka með ákveðnum hætti á þessu máli, veita skýr svör um að menn ætli sér að standa með sveitarfélaginu og íbúum þess við uppbyggingu eftir þessar skriður og að væntingum heimamanna verði mætt varðandi uppbyggingu til framtíðar. Þeirri áskorun ætla ég að svara þannig að það mun ekki skorta vilja hjá ríkisstjórninni eða fjárhagslegan stuðning vegna þeirra verkefni sem ráðast þarf í. Það gleðilega í þessu er að við erum í fyrsta skipti, og er reyndar nýbúið, að fullfjármagna framkvæmdaáætlun til næstu tíu ára. Þannig höfum við nýlega tekið ákvörðun um að hraða framkvæmdum vegna ofanflóðavarna víða um landið og höfum því miður fengið ærin tilefni til þess á þessu kjörtímabili.