málsmeðferðartími sakamála.
Virðulegur forseti. Ég tek auðvitað undir að það er afar mikilvægt að rétta úr kútnum en það erum við að gera. Við höfum verið að fylgja verulega eftir þessari aðgerðaáætlun sem dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa komið að og við fáum reglulega stöðu frá lögregluembættum og héraðssaksóknara. Það er sagt að fjölgun stöðugilda hafi skipt verulegu máli fyrir styrkleika embættanna sem skilar sér í skilvirkari rannsókn kynferðisbrota, styttri afgreiðslutíma. Búið er að gefa svigrúm til að vinna upp málahala sem hefur safnast upp og það virðist vera að virka samkvæmt þeim tölum sem ég fæ, þó að við séum enn þá að sjá dóma í kerfinu þar sem málsmeðferðartíminn var of langur og það er auðvitað óboðlegt. En embættin hafa einnig vegna þessarar aðgerðaáætlunar verið að bregðast við þörfum þolenda kynferðisbrota í miklu meira mæli. Það er búið að bæta upplýsingagjöf, innleiða persónulegra viðmót, kærendum jafnvel boðið upp á sálfræðimeðferð að lokinni skýrslutöku o.s.frv. Þetta er afar mikilvægt, öll þau skref sem aðgerðaáætlun vegna kynferðisbrota hefur tryggt.