151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

búvörulög.

376. mál
[11:27]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við eigum að styðja við matvælaframleiðslu okkar. Við eigum að styðja við íslenskan landbúnað og við eigum að styðja við bændur. Við eigum að gera það með beinum stuðningi og með grænum hvötum. Við eigum hins vegar ekki að gera það með úreltum aðferðum; hækka tollmúra og koma á höftum. En það er leið þessarar ríkisstjórnar. Sagan sýnir að þær aðferðir lengja kreppuna, þær dýpka hana og bitna á þeim sem síst skyldi, þ.e. heimilunum í landinu og þeim sem lágar tekjur hafa. Við þessu varaði ASÍ. Við þessu varaði Samkeppniseftirlitið, einnig Neytendasamtökin, enda var ekkert samráð haft og ekki einu sinni samtal við þessa aðila. Það er alvarlegt.

Viðreisn mun ekki styðja þetta mál af því að hægt er að fara aðrar leiðir, eins og við höfum lagt fram tillögu um, til að styðja við bændur. Ef afurðastöðvarnar eru í vanda þá hljóta fyrirtækjastyrkirnir og aðrir styrkir sem ríkisstjórnin og Alþingi hefur sett fram, að gilda um þær. (Forseti hringir.) En þetta er ekki skynsamlegasta leiðin til þess að verja matvælaframleiðsluna og landbúnaðinn í landinu, hvað þá neytendur.