búvörulög.
Herra forseti. Hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir vék máli að okkur Samfylkingarfólki og hvatti okkur til að styðja við þá fjölmörgu sem vinna við greinina vegna þess að okkur er annt um þá sem eru atvinnuleitendur í dag. Ég vil koma hingað upp til að hvetja hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur til að hlusta á ræður okkar í Samfylkingunni áður en hún fer að tjá sig um þær og leggja út frá þeim, því að það er einmitt það sem við erum að gera, við erum að hugsa um þá sem starfa í greininni en við erum líka að hugsa um almenning í landinu. Hér hefur verið stutt við ýmsar atvinnugreinar og við erum að gera það áfram í dag og á morgun, en í þessu tilviki á ekki að styðja við greinina. Í þessu tilviki á að setja allar álögurnar á neytendur á tímum atvinnukreppu. Það er mjög skrýtin aðferð á sama tíma og margir berjast í bökkum.