151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Hæstv. forseti. Ég hvet hæstv. forseta til að beita sér fyrir því að við fáum í þinginu umræðu um þá stöðu sem er komin upp varðandi stærsta viðfangsefni ársins, og að því er virðist jafnvel þess næsta líka, heimsfaraldur kórónuveirunnar, því að nú hefur verið upplýst að ekki muni skila sér þeir skammtar af bóluefni sem ráð var fyrir gert, þ.e. í mun minni mæli eða síðar en menn gerðu ráð fyrir. Sóttvarnalæknir hefur upplýst að við munum ekki ná góðu hjarðónæmi fyrr en einhvern tímann á seinni hluta næsta árs og munum eflaust þurfa að búa við áframhaldandi hömlur fram eftir næsta ári. Þetta hefur auðvitað áhrif á allt daglegt líf hér á landi, efnahag landsins og nánast allt, eins og við höfum séð í umræðu um hin ýmsu mál fyrir þinginu. Því tel ég brýnt, algjörlega nauðsynlegt raunar, að þingið fái umræðu um þessi mál og upplýsingagjöf frá stjórnvöldum svoleiðis að við sjáum betur í hvað stefnir og hvað valdi.

Hæstv. forseti. Ég bendi t.d. á að gengi hlutabréfa í Icelandair hefur fallið um 12% það sem af er degi (Forseti hringir.) eftir þessar fréttir og sömu áhrif munu birtast víða annars staðar í efnahagslífinu.