staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Herra forseti. Tíðindi dagsins kalla á viðbrögð frá stjórnvöldum. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sem reið hér á vaðið, það er alveg nauðsynlegt að stjórnvöld bregðist við og upplýsi um það hvers sé í raun að vænta varðandi bólusetningar, efni, forgangsröðun og annað tengt. Fullnægjandi gagnsæi þarf að ríkja um þau efni þannig að þjóðin viti að hverju hún gengur. Við höfum séð að staðan er mjög viðkvæm gagnvart þessari veiru. Þar hefur gætt flóðs og fjöru eins og menn þekkja og áframhaldandi takmarkanir (Forseti hringir.) eru náttúrlega nokkuð sem er mjög erfitt að sætta sig við þó að auðvitað verði menn að gera fleira en gott þykir í þeim efnum. En það er þeim mun nauðsynlegra að menn viti (Forseti hringir.) hvers sé að vænta varðandi efniskaup og bólusetningar og þá forgangsröðun sem stjórnvöld munu ákveða í þeim efnum.