staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Herra forseti. Mig langar að leggja nokkur orð í belg í ljósi þeirra frétta sem berast af fundi sóttvarnalæknis í morgun. Nú ræðum við fjármálaáætlun í þinginu og hér á eftir að ræða fjárlög og fjárauka áður en þing fer í jólahlé. Fréttir morgunsins hafa auðvitað veruleg áhrif á allar forsendur þessara mála. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan hæstv. heilbrigðisráðherra sagði að við gætum hafið bólusetningu á fyrstu vikum nýs árs og að markmiðum bólusetningar yrði náð á u.þ.b. fyrsta ársfjórðungi ársins. Nú eru okkur færð allt önnur skilaboð þannig að ég velti fyrir mér hvort það sé nokkuð annað í stöðunni en að senda fjárlaganefnd aftur í fundahöld (Forseti hringir.) með það fyrir augum að taka þessi þrjú mál til sín og taka tillit til þeirrar breyttu stöðu sem nú virðist vera komin upp.