staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Herra forseti. Við vorum að fá sláandi fréttir. Atvinnulíf hér á landi hefur verið lamað í níu mánuði. Nú erum við að fá þær fréttir að hugsanlega verði það lamað annan eins tíma í framhaldinu, og vegna hvers? Við fréttum að Bretar eru komnir á fulla ferð að bólusetja. Einnig er bólusetning komin á fullt skrið í Bandaríkjunum. Bólusetning á Íslandi virðist vera í algjörri óvissu. Hefði t.d. mátt taka mark á leyfum bresku lyfjastofnunarinnar sem starfar samkvæmt evrópskum lögum? Hefði mátt taka mark á því og fara fyrr af stað? Hvernig er samningum háttað? Hvernig var samningagerðinni háttað? Þurftum við að binda okkur við Evrópu eða ekki? Mörgum spurningum er ósvarað, herra forseti, og þrátt fyrir að jólafrí sé fram undan hjá þingmönnum þá tel ég þetta svo mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að við verðum að taka það upp á Alþingi og ræða það hér.