151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:37]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Fréttir morgunsins eru meira en áhyggjuefni. Þær eru verri en nýr sviti svo vitnað sé í þá góðu bók Ástrík. Við þurfum að vita núna hvort Ísland er eina landið í þessum heimshluta sem fær einn sjötta afgreiddan af þeim pöntunum sem lagðar voru inn hjá lyfjafyrirtækinu Pfizer eða hvort þetta er afgreiðsla sem er eins í allri Evrópu og jafnvel í Bandaríkjunum líka. Við þurfum að vita af hverju þetta er. Talað er um hráefnisskort í bóluefni og ég minni á að við erum jafn fjölmenn og Árósar þannig að það getur ekki þurft mikið hráefni til að klára pöntun frá okkur. En við þurfum að fá skýringu á því hvort það er almennt að þjóðir hafi fengið afpöntun eins og þessa (Forseti hringir.) eða hvort við sitjum ein uppi og þá þurfum við að vita hvernig þessum samningum var háttað, herra forseti.