151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:39]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hérna erum við að fara að ræða fjármálaáætlun stjórnvalda sem er stefna þeirra til næstu fimm ára. Þegar upp koma mál eins og þetta sem hefur áhrif á fyrstu 10% af þeim tíma þá tel ég eðlilegt að við fáum forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra í umræðuna til þessa að útskýra fyrir okkur hvað er eiginlega að gerast.