staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Takk, forseti. Ég held að það væri skynsamlegt hjá þingforseta að bjóða heilbrigðisráðherra að vera með munnlega skýrslu eins og heilbrigðisráðherra hefur gert tvisvar áður og aðrir ráðherrar líka. Mikilvægt er að umræða eigi sér stað hérna í þinginu. Ofan á það skiptir máli að horfa til þess að mjög vel hefur verið haldið á sóttvörnum á Íslandi. Við verðum að vita samt sem áður hvernig þetta verður þegar bóluefni kemur. Við skulum ekki mála myndina dekkri en hún er. Eftir því sem fleiri verða bólusettir, þeim mun minni harka þarf að vera í sóttvarnaaðgerðunum af því að þeir sem eru bólusettir og komnir með ónæmi eru eins og þeir séu vel sprittaðir og með grímur alls staðar. Ég myndi vilja vita hvað hlutfall bólusettra þarf að vera hátt, kannski þarf að fara upp í, held ég, 82% mest, mögulega 60%. Þá sviðsmynd væri mjög gott fyrir landsmenn að fá að sjá þannig að við sjáum hvernig staðan mun batna hægt og rólega á næsta ári miðað við stöðu bóluefnisins sem er núna komin í ljós. Ég held að það væri mjög gott fyrir þingið og þjóðina að fá munnlega skýrslu frá heilbrigðisráðherra á þessum tímapunkti.