151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:42]
Horfa

Sara Elísa Þórðardóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir með þeim sem hér hafa talað á undan. Þær upplýsingar sem komu fram á fundi almannavarna í dag gjörbreyta stöðunni og hér hefur orðið forsendubrestur hvað varðar efnahagslega þætti í samfélaginu og margt annað. Orðræða síðustu vikna hefur verið á þann veg að við værum komin á lokasprettinn í þessu, þetta væri handan við hornið. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur gefið það út í fjölmiðlum að bólusetning sé handan við hornið, öðrum hvorum megin við áramót, og þessar nýju upplýsingar setja töluvert margt í uppnám. Við sjáum strax að verðbréfamarkaðurinn er farinn að skynja breytingar út af þessum upplýsingum. Eins myndi ég vilja spyrja hvort upplýsingar eins og þær sem komu fram í dag þyrftu ekki að koma frá ráðherra sjálfum frekar en sóttvarnayfirvöldum beint. En ég kalla eftir frekari umræðu um þetta í þinginu.