151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:43]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara að koma hingað og taka undir þessa bón. Það er svo sem ekki miklu við að bæta. Við þingmenn ætlum víst að hætta að þinga á morgun samkvæmt því sem við vorum búin að ákveða. Ef það gengur eftir, sem ég hef ekki heyrt neinn efast um hingað til, þá þurfum við samt sem áður að fara mjög vel upplýst inn í komandi ár vegna þess að eins og hefur verið farið hér yfir þá gjörbreytir þetta öllum forsendum sem við höfum haft efnahagslega og sömuleiðis um það hvernig fólk fer að lifa sínu venjulega lífi aftur. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanna Miðflokksins og annarra og óska eftir því að þingið verði vel upplýst um stöðu mála og sömuleiðis ekki síst hvað, ef eitthvað, við getum gert á Alþingi eða þá hjá framkvæmdarvaldinu til að bregðast við þessu með sem skynsamlegustum hætti. Ég geri ráð fyrir því að hér séu fleiri en ein möguleg sviðsmynd. Það er mjög mikilvægt að þingmenn séu upplýstir um þær allar.