151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Mig langaði að beina tveimur atriðum til hæstv. forseta í tengslum við þessar ábendingar. Í fyrsta lagi kom hv. þm. Björn Leví Gunnarsson hingað upp áðan og benti á að í augnablikinu væri verið að ræða fjármálaáætlun og að þessi lengdi tími harðra sóttvarnaaðgerða sem virðist liggja í loftinu núna taki til um 5% þess tíma sem fjármálaáætlunin nær yfir. En það er líka verið að afgreiða hér fjárlög sem eru til næsta árs og þetta gjörbreytir auðvitað öllu samhengi þess máls. Í stað þess að menn séu bara að horfa til fyrsta þriðjungs ársins hvað harðar sóttvarnaaðgerðir varðar er verið að horfa á obbann af árinu, alla vega vel inn í þriðja fjórðung ef vel fer, miðað við fréttir morgunsins.

Hitt atriðið sem mig langaði til að nefna er að ef hæstv. forseti sér ekki forsendur til að fá hæstv. heilbrigðisráðherra til sérstakrar umræðu í dag eða skýrslugjafar þá verður örugglega svigrúm einhvern tímann á morgun (Forseti hringir.) því að ef ég þekki verklag rétt þá mun þurfa að gera hlé á einhverjum tímapunkti vegna skjalavinnslu þannig að það ætti sannarlega að vera pláss fyrir þá umræðu.