151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:46]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Fréttir dagsins voru mikið reiðarslag, sérstaklega fyrir atvinnulíf landsmanna. Stjórnvöld skulda atvinnulífinu skýringar. Skýringar á hverju? Hvað þurfum við að ræða? Við eigum að ræða samningagerðina. Hvernig var staðið að þessum samningum? Af hverju tókum við þá ákvörðun, sem virðist vera afdrifarík eins og það lítur út núna, að fylgja Evrópusambandinu í þessum samningum? Við þurfum svar við því. Var ekki hægt að fara t.d. tvær leiðir samtímis? Bólusetning hér á landi er í algerri óvissu. Bretar eru byrjaðir að bólusetja, Bandaríkjamenn líka. Við stöndum hjá. Vorum við settir til hliðar? Við þurfum svör við þessu. Við þurfum að ræða þetta. Þrátt fyrir að stutt sé í þinglok þá verðum við að ræða þetta á Alþingi, taka upp umræðu um þetta og fá skýr svör. Við skuldum atvinnulífinu það og líka almenningi sem hefur tekið á sig þungar byrðar. (Forseti hringir.) Það þarf ekki að lýsa því hvernig almenningur hefur fylgt stjórnvöldum í þessu máli og tekið á sig miklar byrðar varðandi sóttvarnir.