151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:47]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Þetta er athyglisverð umræða. Auðvitað eru þessi mál okkur öllum hugleikin og við viljum að fari allt á besta veg. Það er kannski ágætt, í ljósi ýmissa orða sem hafa fallið hér, að rifja upp að Íslendingum hefur boðist á grundvelli samninga Evrópusambandsins við lyfjaframleiðendur að fá ýmis bóluefni. Ég hvet hv. þingmenn til að skoða yfirlit á vef heilbrigðisráðuneytisins frá í morgun yfir stöðu samninga um bóluefni vegna Covid-19. Margir samningar hafa verið gerðir. Af hverju er ekki byrjað hér? Jú, við verðum að bíða eftir mati Evrópsku lyfjastofnunarinnar eins og ég hélt að allir vissu sem fylgdust með. Það er sagt að hér hafi verið talað um að bólusetningar ættu að byrja. Kom ekki fram á fundi sóttvarnalæknis í morgun að þær myndu hefjast um jólin? Um jólin verður hægt að bólusetja um 5.000 manns. En já, forgangsröðun breyttist vegna hráefnisskorts erlendis. (Forseti hringir.) Það er slæmt. Ég er sammála því að við þurfum að fá svör við því. Við skulum reyna að fara tiltölulega eðlilega inn í þessa umræðu. Hún er nefnilega mikilvæg og mikilvægt hvernig við tölum um þjóðina, um bólusetningar.