staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Herra forseti. Það er mjög gagnlegt að fá hér sjónarhorn hv. þm. Kolbeins Óttarssonar Proppés og leiðbeiningar um það að lesa vef heilbrigðisráðuneytisins og auðvitað ber að þakka honum fyrir það. En það kemur ekki í staðinn fyrir það sem hér er verið að kalla eftir, sem er náttúrlega algerlega nauðsynlegt, þ.e. að stjórnvöld, og þá væntanlega heilbrigðisráðherra, veiti Alþingi skýrslu um þetta mál og hvers megi vænta. Það er algerlega nauðsynlegt. Það er ekkert við það að athuga þó að þessar upplýsingar hafi komið fram á fundi almannavarna og sóttvarnayfirvalda í morgun en það stendur upp á stjórnvöld að veita skýr svör í nafni upplýsinga og gagnsæis því að þessi tíðindi eru sannarlega ekki góð, herra forseti. Það verður að leggja spilin á borðið.