151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:50]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé brá sér í gamalkunnugt hlutverk hér sem varðhundur kerfisins. Mig langar að gera athugasemd við þau orð að hér hafi farið fram einhver óeðlileg umræða um þá grafalvarlegu stöðu sem nú blasir við okkur og velti fyrir mér hvernig þessi umræða gæti verið eðlilegri. Við stöndum frammi fyrir því að fá einn sjötta af því bóluefni sem sagt hefur verið að samningar séu um og hér hefur m.a. verið spurt hvort við séum ein á báti í þessu eða hvort Evrópa öll sé á þessum báti. Finnst mönnum það óeðlilegt? Finnst hv. þm. Kolbeini Óttarssyni Proppé tíðindi dagsins ekki nógu alvarleg til þess að beðið sé um skýringar, að þjóðin fái skýringar, sem og Alþingi allt sem hefur staðið með stjórnvöldum í þessum málum frá fyrsta degi? (Forseti hringir.) Finnst hv. þingmanni það ofrausn að þjóð og þing fái skýringar á þessari stöðu?