151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

staðan í sóttvarnaaðgerðum.

[13:53]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegur forseti. Nýjar fréttir af bólusetningum eða einhvers konar höggi í þau áform ættu ekki að koma neinum á óvart. Ég held að það hafi alveg verið fyrirséð að þetta myndi ekki renna eins og árnar okkar, hnökralaus áform um bólusetningar. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart og menn hljóta að hafa skilning á því að einhverjir hnökrar verði uppi. En burt séð frá því hins vegar þá held ég að það sé mjög nauðsynlegt að stjórnvöld svari því hvernig menn ætla að mæta þeim hnökrum, hvert markmiðið er með bólusetningu, hversu lengi menn sjá fyrir sér þær gríðarlega hörðu sóttvarnaaðgerðir sem núna eru í gildi og menn greinir mjög á um og misskilja úti um allt þetta samfélag okkar hérna. Þess vegna kallaði ég eftir því í gær, sá stjórnarþingmaður sem hér stendur, að hér yrði fundinn tími til að ræða þessi mál áður en þingið færi í mánaðarlangt frí. Ég ítreka þá ósk mína, virðulegur forseti, að forsætisnefnd og heilbrigðisráðherra finni tíma í þetta ekki seinna en á morgun.