staðan í sóttvarnaaðgerðum.
Forseti. Mér þykir það ljóður á umræðunni þegar það að maður hafi athugasemd við einstaka orð er túlkað eins og maður sé á móti umræðum. Það er útúrsnúningur sem við eigum ekki að leyfa okkur í jafn alvarlegu máli og við erum að fjalla um hér, forseti, og ég hvet okkur öll til að tala af ábyrgð um þetta mál (ÓÍ: … ekki gert.) og þau alvarlegu mál sem eru undir. Ég hvet fólk til að líta upp úr eigin nafla og persónugera hlutina þeim sem hér stendur og kannski sýna mér þá virðingu að leyfa mér að tala án frammíkalla í svona alvarlegu máli, hv. þm. Ólafur Ísleifsson.
Í ljósi þeirra orða sem hér voru látin falla áðan gerði ég ekki annað en að benda á hvar almenningur og þingmenn gætu leitað upplýsinga við ýmsum af þeim spurningum sem hér hafa komið fram. Ég styð það heils hugar að við getum átt samtöl hvert við annað og við ráðamenn um þessi mál. En ég kom hingað upp til að benda á hvar væri að finna svör við ýmsum af þeim spurningum sem hér hafa verið bornar fram af hv. þingmönnum.