151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[15:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svar hans en ég vildi þá kannski í seinna andsvari leyfa mér að spyrja hv. þingmann með beinum hætti: Hvert er viðhorf hans til þess að hækka skatta, vill hann hækka skatta eða lækka skatta? Hvaða útgjöld myndi hann vilja skera niður og hvar vildi hann auka útgjöld og hvernig myndi hann fjármagna þau? Ég get ekki haft þetta öllu einfaldara, virðulegi forseti, en þetta er kannski líka tilraun mín til að reyna að draga fram einhverja pólitík aðra en form.