151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[16:10]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta fjárln. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir nefndaráliti 4. minni hluta um fjármálaáætlun fyrir árin 2021–2025. Lög um opinber fjármál hafa vægast sagt fengið eldskírn á yfirstandandi kjörtímabili. Það kemur glögglega í ljós í þeim fjármálaáætlunum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á kjörtímabilinu og nú er til umfjöllunar næstsíðasta fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar, ef að líkum lætur, sem tekur til áranna 2021–2025. Hún leggur línurnar í stefnumótun ríkisstjórnarinnar þar til ný fjármálaáætlun verður lögð fram næsta vor. Gildistími hennar verður því aðeins fjórir til sex mánuðir, samanber lög um opinber fjármál sem kveða á um að ævinlega skuli leggja fram nýja áætlun fyrir 1. apríl hvers árs þótt meginmarkmiðið með áætluninni sé auðvitað að leggja línurnar til fimm ára. Þar er í rauninni fjármálastefnan fastari í skorðum hvað það varðar. Ef fram fer sem horfir tekur sennilega allt önnur ríkisstjórn við stjórnartaumunum að loknum kosningum næsta haust. Ný ríkisstjórn kemur þannig með nýjar áherslur og nýja fjármálaáætlun vorið 2022.

Fjármálaráð bendir á það í umsögn sinni að við lok kjörtímabils hverrar ríkisstjórnar skapist ákveðinn vandi sem lög um opinber fjármál geri ekki ráð fyrir. Um það segir fjármálaráð, með leyfi forseta:

„Vandinn birtist í því að oft getur verið fyrirsjáanlegt að áskoranir séu fram undan sem þurfi að bregðast við á næsta kjörtímabili enda þótt úrlausn þeirra eigi sér stað utan kjörtímabils núverandi valdhafa. Að bregðast ekki við vandamálum getur leitt til andvaraleysis og nærsýni.“

Nú skapa aðstæður hvata fyrir ríkisstjórnina til að fresta erfiðum aðgerðum þar til eftir kosningar. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun að stöðva þurfi skuldasöfnun fyrir árið 2025. Ekki er þó gert ráð fyrir sérstökum aðgerðum til að draga úr útgjaldavexti fyrr en á seinni árum áætlunarinnar. Hér er því boltanum kastað til næstu ríkisstjórnar og henni m.a. gert að bæta afkomu ríkissjóðs árlega um 37 milljarða kr. árin 2023–2025.

Það leynir sér ekki að fjármálaáætlun ber með sér að uppsöfnuðum Covid-vanda þessarar ríkisstjórnar verður kastað í fangið á þeirri næstu. Óvíst er hvort hægt verði að grípa til aðgerða til að draga úr skuldasöfnun á næstu mánuðum án þess að það bitni harkalega á hagkerfinu. Nauðsynlegt er að beita öllum ráðum til varnar tilfærslukerfunum og hamla hvers konar niðurskurði hjá hinu opinbera að svo stöddu. Einnig væri óverjandi að freistast til að drýgja tekjur ríkissjóðs með aukinni skattheimtu á slíkum samdráttartíma. Slíkt myndi einungis leiða til enn frekari niðursveiflu í hagkerfinu og auka ójöfnuð og misskiptingu í samfélaginu. Það er því skiljanlegt að ekki sé áætlað að grípa til afkomubætandi aðgerða fyrr en á seinni árum áætlunarinnar.

Ný ríkisstjórn fær það vandasama verkefni að draga úr skuldasöfnun og tryggja vöxt hagkerfisins á næstu árum. Það kemur í ljós eftir næstu kosningar hvort það verður gert með gamaldags niðurskurði eða hvort leitað verður nýrra leiða til að koma í veg fyrir að afkomubætandi ráðstafanir bitni á fólkinu.

Heilbrigðis-, öldrunar- og menntastofnanir eru áfram krafðar um aðhald í rekstri. Í fjármálaáætlun þessari eru sett fram aðhaldsmarkmið. Gerð er 2% almenn aðhaldskrafa á árunum 2021–2022 og 0,5% aðhaldskrafa á heilbrigðis-, öldrunar- og menntastofnanir. Hins vegar er fallið frá aðhaldskröfu á þær stofnanir á árunum 2023–2025 og almenna aðhaldskrafan lækkuð í 1%. Við höfum þegar horft upp á neikvæðar afleiðingar þess að krefja heilbrigðisstofnanir um aðhald í rekstri. Þar er búið að skera niður allt sem hægt er að skera niður og öllum má vera ljóst að frekari niðurskurður kemur harkalega niður á þjónustunni. Það er óskiljanlegt með öllu að þessari niðurskurðarkröfu sé haldið til streitu næstu tvö árin en verði síðan felld brott eftir það. Eðlilegra væri að snúa þessu við og gera minni kröfur um aðhald nú á tímum Covid en auka þær ef þörf krefur á síðari tíma áætlunarinnar þegar hagvöxturinn hefur tekið við sér og horfur í efnahagsmálum hafa batnað.

Fjórði minni hluti telur þó almennt alrangt að kalla eftir aðhaldsaðgerðum í heilbrigðisþjónustu, það á bara ekki að eiga sér stað. En þrátt fyrir það að nú hefur ríkisstjórnin komið til móts við óskir Landspítala um að fá að dreifa rekstrarvanda sínum til lengri tíma þá breytir það ekki þeirri staðreynd að rekstrarvandi Landspítalans er uppsafnaður upp á ríflega 4,3 milljarða kr. Það er í rauninni sorglegt. Það er bara sorglegt að hann skuli ekki vera látinn hverfa. Við eigum að sjá til þess að allar heilbrigðisstofnanir séu búnar nýjustu tækni og nægum mannafla. Við eigum ekki að þurfa að horfa upp á nokkurn einstakling finna sig knúinn til að útvega Landspítalanum nauðsynleg tæki til bjargar mannslífum af því að heilbrigðisyfirvöld draga lappirnar og gera það ekki. Við eigum ekki að þurfa að horfa upp á fjölda aldraðra í óvissu og vanlíðan í bið eftir varanlegu búsetuúrræði. Aldraðir neyðast jafnvel til að bíða eftir hjúkrunarrými inniliggjandi á Landspítala vegna þess að heilbrigðisyfirvöld vilja ekki semja við einkaaðila um rekstur hjúkrunarrýma. Við eigum ekki að þurfa að búa við menntakerfi sem fær hverja falleinkunnina á fætur annarri.

Fjármálaáætlun gerði upphaflega ráð fyrir 32 milljarða kr. óútfærðum ráðstöfunum árlega á tímabilinu 2023–2025 til að draga úr útgjaldavexti og auka tekjur ríkissjóðs. Nú liggur fyrir að auka þarf umfangið úr 32 milljörðum kr. í 37 milljarða kr, það kemur fram í breytingartillögu meiri hluta fjárlaganefndar. Til samanburðar er gert ráð fyrir því að aðhaldsmarkmið skili á næsta ári 5 milljarða kr. lækkun á útgjaldavexti. Hér er því um háar fjárhæðir að ræða. Það er eðlilegt að þessum ráðstöfunum sé ekki lýst nánar í fjármálaáætlun, enda verður útfærsla þeirra eitt helsta viðfangsefni næstu ríkisstjórnar.

Fjármálaráðherra hefur þegar gefið til kynna hvaða leið Sjálfstæðismenn fari í þessum efnum því að á bls. 102 í tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun birtast þessi áform. Þar segir, með leyfi forseta:

„Ríkið hefur möguleika á að mæta fjárþörf með andvirði af sölu eigna. Áformum um sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka var slegið á frest en ef af þeirri sölu yrði væri unnt að draga úr fjármögnunarþörf eða lækka skuldir á móti. Slík sala gæti verið vænlegur kostur á síðari hluta fjármálaáætlunar og þar með yrði hægt að draga úr skuldaaukningu fyrr en ella.“

Þeir vilja sem sagt selja gullegg sem hefur skilað ríkissjóði 65 milljörðum kr. í arðgreiðslur frá því árið 2016. Bitur reynslan ætti að hafa kennt okkur að sala ríkiseigna skilar oftar en ekki margföldum gróða til kaupendanna á meðan þjóðin tapar. Við munum vel eftirmála einkavæðingarinnar upp úr síðustu aldamótum. Lítill hópur útvalinna gæðinga hagnaðist stórfenglega en þjóðin sat eftir með sárt ennið. Þá er okkur í fersku minni hvernig staðið var að sölu Landsbankans á eignarhlut hans í Borgun. Enn í dag bíðum við svara við fjölda spurninga um rekstur Lindarhvols sem sá um sölu á eignum sem ríkinu áskotnaðist vegna stöðugleikaframlaga.

Lengi hefur verið þörf á nauðsynlegum aðgerðum á hinum ýmsu málefnasviðum en ríkisstjórnin hefur ítrekað hafnað frekari fjárheimildum til úrbóta. Þar vegur þyngst uppsöfnuð kjaragliðnun almannatryggingaþega sem nemur tugum prósenta. Ríkisstjórnin og forverar hennar hafa ekki fylgt settum lögum sem kveða á um lögbundnar leiðréttingar almannatrygginga 1. janúar ár hvert í samræmi við launaþróun, samanber 69. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007.

Einnig ber að nefna Landspítalann sem glímir við mikinn uppsafnaðan rekstrarhalla sem ríkisstjórnin ætti að afskrifa á stundinni. Það er í rauninni það sem Flokkur fólksins vildi sjá og fleiri þingmenn hafa kallað eftir því sama. Auðvitað einkennast þeir af því vera í stjórnarandstöðu og geta því alveg eins galað út í tómið, held ég. En það er ekki nóg að byggja hjúkrunarrými þó að það sé góðra gjalda vert og hér veit ég að auka á við og núna eru 100 hjúkrunarrými í byggingu og það á ekki að gera lítið úr því en það er hins vegar nauðsynlegt að tryggja fjármögnun reksturs þeirra. Það er akkúrat það sem ekki hefur verið gert. Margar fleiri stofnanir á vegum hins opinbera búa við fjárskort sem hamlar þeim í að sinna lögbundnum skyldum sínum. Það er ámælisvert að ríkisstjórnin ætli ekki að taka á vandanum á gildistíma fjármálaáætlunar.

Flokkur fólksins hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um staðgreiðslu skatta við innborgun í lífeyrissjóði. Ef staðgreiðslan yrði tekin strax við innborgun en ekki við úttekt eins og nú er myndi það auka tekjur ríkissjóðs um tugi milljarða króna á ári án þess að það skerti með nokkrum hætti hagsmuni lífeyrisþegans. Þeir sem hafa þegar lagt fyrir í lífeyrissjóð þurfa ekkert að óttast, enda eru breytingar á skattkerfinu aldrei íþyngjandi afturvirkar. Í staðinn söfnum við skuldum alls staðar og ég hef margoft sagt það hér og vonast til þess að þessi liður eigi eftir að vekja meiri umræðu, jákvæða umræðu, þegar við bendum á það að ef staðgreiðsla verður tekin við innborgun í lífeyrissjóðina þá fáum við í ríkissjóð tugi milljarða króna sem ég hefði viljað sjá að væru notaðir í þágu eigenda sjóðanna, til að afnema skerðingar, til að geta nýtt fjármagnið strax en ekki seinna. Núna eiga lífeyrissjóðirnir okkar yfir 6.000 milljarða kr. eignir, margföld íslensku fjárlögin. Er ástæða til þess að þetta bólgni enn frekar út? Lífeyrissjóðirnir fá yfir 200 milljarða á ári í iðgjöld. Þeir sem gagnrýna þetta spyrja hvort eigi að skerða réttindi lífeyrisþega með því að taka staðgreiðslu strax, og segja að þá geti lífeyrissjóðirnir ekki ávaxtað eins vel. Ég segi við þær gagnrýnisraddir: Ég veit ekki betur en að þrátt fyrir að greidd hafi verið staðgreiðsla við útborgun eins og nú er gert hafi hér á tímum komið upp sú staða að stjórnir lífeyrissjóða hafi ákveðið með einu pennastriki, á einni nóttu, á einum fundi, að skerða áunnin réttindi lífeyrisþega sinna um allt að 30% vegna þess að reksturinn hafi ekki gengið nógu vel. Ég er heldur ekki búin að gleyma, virðulegi forseti, hvernig lífeyrissjóðirnir töpuðu um 600 milljörðum kr. af fjármagni lífeyrisþega í efnahagshruninu.

En við verðum líka að átta okkur á því að það er mjög varasamt og kallar á áhættu fjárfestingarsjóðanna að vera núna með lögþvingaða skyldu á sjóðina að vera með 3,5% ávöxtunarkröfu. Það er í rauninni úr öllum takti við vaxtastigið í landinu ef við horfum t.d. á vexti Seðlabankans sem eru komnir niður í 0,75%. Þó að það dapra í stöðunni sé að neytendur á almennum bankamarkaði hafi ekki fengið að njóta þess nema að allt of litlu leyti þá er ástæða til að skoða þetta kerfi okkar. Til dæmis hefur oft verið sagt að einfaldasta leiðin til þess að fá fram skoðun þjóðarinnar án þess að setja hana í þjóðaratkvæðagreiðslu sé að koma með góða skoðanakönnun og leyfa einstaklingnum sjálfum að velja hvort hann vilji greiða staðgreiðslu af iðgjöldunum sínum við innborgun í sjóðinn og þurfa síðan ekki að spá í það meir eða hvort hann vilji gera það á seinni stigum og hvort hann myndi frekar vilja hafa það þannig að við myndum afnema allar skerðingar í staðinn. Það yrði afgangur, virðulegi forseti, upp á nokkrar tugi milljarða, bara við þetta, sem væri hægt að nýta í annað. Ég átta mig alls ekki á því hvers vegna er svona erfitt að stíga út fyrir rammann.

Svo er virkilega dapurt, virðulegur forseti, að horfa upp á það hvernig fátækasta fólk þessa lands er sífellt sniðgengið. Við getum hætt að tala um að lægstu tekjutíundirnar hér séu undir fátæktarmörkum. Þær eru undir hungurmörkum. Við hljótum að geta sagt okkur það sjálf að það er til ævarandi skammar þegar einstaklingar eru farnir að líða næringarskort og borða einhæfan mat og hafa ekki ráð á því að svo mikið sem kaupa sér vítamín til þess að reyna að vega á móti einhæfri fæðu sem þeir neyta.

Það eru að koma jól, virðulegi forseti. Öryrkjar fengu 50.000 kr. núna í eingreiðslu, skatta- og skerðingarlaust, um jólin, það var alveg frábært. 1,1 milljarður af áður samþykktri fjárveitingu var nýttur í það. Við höfðum áður heimilað 4 milljarða kr. fjárveitingu til breytingar inni í kerfinu fyrir öryrkja og það var hugsað þannig, fyrst, eins og mér skildist það, að reyna ætti að koma á starfsgetumati, síðan voru 2,9 milljarðar teknir í að koma krónu á móti krónu skerðingunni á ákveðinn hóp niður í krónu á móti 65 aurum. Eftir stóð 1,1 milljarður og hann verður nýttur til að hjálpa öryrkjum fyrir jólin með 50.000 kr. eingreiðslu og það er algjörlega stórkostlegt. Þess vegna get ég ekki skilið af hverju við erum að skilja einhverja út undan sem eiga bágt. Ég átta mig bara ekki á því, virðulegi forseti. Það er mismunun og þetta er bara ljótt. Það er eina orðið sem ég hef um það. Það er bara virkilega ljótt.

Í mig hafa hringt mjög margir eldri borgarar. Það er eiginlega það erfiðasta sem ég hef gert, að hlusta á fullorðið fólk sem hefur unnið alla sína ævi fara að hágráta af vanlíðan og kvíða. Það er eitthvað það erfiðasta sem maður tekst á í þessu starfi, að hlusta á hvernig er verið að brjóta niður þennan hóp samfélagsins. Hæstv. fjármálaráðherra hefur ítrekað margsinnis að hópurinn telji ekki svo marga einstaklinga. Hvers vegna er þeim þá ekki hjálpað? Hvers vegna er þeim mismunað? Talað er um 600 milljarða skuldasöfnun ríkissjóðs á þessu ári og hinu næsta. Miðað við þær neikvæðu, ömurlegu fréttir sem við vorum að fá í sambandi við bóluefni, og að sjálfsagt þurfum við að þreyja þorrann þó nokkrum mánuðum lengur en okkar heitustu óskir stóðu til, þá er í rauninni ekkert sem segir að við getum ekki aukið enn skuldasöfnunina.

En ef við myndum kannski ákveða að hafa það áramótaheit núna að reyna hina aðferðina í sambandi við sóttvarnirnar, að einbeita okkur eingöngu að þeim á landamærunum en leyfa okkur hinum að fá að vera í friði sem byggjum þetta ágæta land og fá að nýta okkar kerfi og versla í okkar verslunum og vera ekki endalaust að panta eitthvað erlendis frá, vera á veitingastöðum og í okkar staðbundnu leikhúsum og alls staðar fá að vera við sjálf, yrði menntakerfið, heilbrigðiskerfið og allt betra. Allt yrði svo miklu þægilegra og betra. Draga myndi úr þunglyndi og sjálfsvígum og þessu öllu saman. Við höfum reynt hitt og förum upp og niður. Við förum í gegnum þessa bylgju og hina og nú er allt í lagi og nú má fara að létta á, en æ úps, það er allt að gjósa upp aftur. Við hverju býst fólk? Við erum að flytja veiruna inn. Það er ekkert flóknara en það. Og við erum orðin þreytt. Þjóðin er orðin þreytt á að vera bundin heima. Við erum orðin þreytt á að geta ekki um frjálst höfuð strokið í okkar litla landi miðað við þá sérstöðu og þá miklu lukku sem við getum a.m.k. sagt að felist í því að búa hér á þessari litlu eyju norður í ballarhafi. Þessi veira kemst á tvennan hátt inn í landið, annaðhvort sjóleiðis um Seyðisfjörð og fleiri hafnir, eða með flugi. Okkur er í lófa lagið að stemma stigu við þessu. Okkur er í lófa lagið að vera hérna með allt saman hlaupandi út um allar koppagrundir og fá að njóta samfélagsins eins og við höfum alltaf haft það og viljum gera áfram. Ég vil bara hvetja stjórnvöld og sóttvarnayfirvöld til dáða hvað það varðar. Við þjóðina segi ég bara: Mikið ofboðslega höfum við verið dugleg og þið miklar hetjur. Heilbrigðisstarfsfólkið hefur svoleiðis staðið í eldlínunni og það er líka orðið þreytt.

Við viljum ekki fjórðu bylgju faraldursins, við viljum ekki sjá hana. Við erum að ná að kála þessari akkúrat núna. Við eigum að fá að njóta þess. Við viljum ekki fjórðu bylgju faraldursins og ég veit að ég tala fyrir munn alveg ótrúlega margra þegar ég segi þetta. Það hefur hvergi komið fram, ekki í fjármálaáætlunum, fjármálastefnunni, fjárlögunum, fjáraukanum, það kemur ekki fram í neinu sem heitir fjár-eitthvað hér, hver raunverulegur ábati hefur verið af þeim gífurlega kostnaði sem við höfum lagt í þær aðgerðir sem við höfum þó haft á landamærunum, allar þessar skimanir og allt þetta útkallsfólk og allt sem við höfum þurft að keyra áfram og hið gríðarlega hrun ferðaþjónustunnar. Hvað hefur það kostað okkur að loka öllum þessum hótelum og allt það? Hvað myndi það hins vegar gefa okkur ef við gætum sjálf ferðast innan lands óheft og frjáls og gist á hótelum og allt gert ef okkur sýndist svo?

Ég hef áður nefnt það hér að það var í rauninni viðtekin venja, áður en ferðamannaiðnaðurinn byggðist svo rosalega upp, að öll hótelherbergi voru alltaf uppseld og hótel uppfull og varla hægt að gista þar eina nótt nema panta herbergi með margra mánaða fyrirvara. En við fórum á milli landsvæða hér, pöntuðum okkur herbergi og fórum og heimsóttum vini og vandamenn. Landsbyggðarmenn komu hingað til borgarinnar í borgarferð, fóru í jólainnkaupaferð, gistu á hótelum eða voru í íbúðum sem þeir leigðu á annan hátt. En núna er ekkert hægt. Það er allt stopp, það er allt bannað af því við erum að flytja inn veiru í gegnum landamærin, hugsa sér.

Virðulegi forseti. Ég segi bara enn og aftur: Við eigum að standa saman sem aldrei fyrr. Eftir því er tekið úti um allan heim þegar við tökum okkur saman. En við verðum líka auðvitað jafn svekkt þegar allt puðið kallar á einhverja nýja bylgju og í þessu tilviki hugsanlega fjórðu bylgju. En við megum ekki láta það gerast núna um jólin því að þá getum við náttúrlega aldrei séð að breytt yrði áherslum og farið að gefa okkur meira frelsi innan lands. Við verðum að ná að kæfa þessa veiru alveg núna og þá getum við byrjað nokkurn veginn á núllpunkti og alveg upp á nýtt, fyrir okkur, okkar samfélag. Það er það sem ég vildi sjá.

Sú fjármálaáætlun sem ég hef rætt hér fylgir um margt nákvæmlega því sem þarf að gera. En við vitum að hún er líka til mjög skamms tíma. Ég tek undir með samstarfsmönnum mínum í fjárlaganefnd, þessi tími hefur verið snúinn. Þetta hefur verið mikil vinna í nefndinni, við sjáum nú ekkert eftir okkur í hana, en það er verra þegar afraksturinn úreldist nánast á einum fundi og maður verður í rauninni bara dapur. Við höfum talað svo lengi um viðspyrnu. Þá viðspyrnu verðum við að veita sjálf, við þurfum að stóla á okkur sjálf. Við verðum að keyra efnahagskerfið okkar áfram sjálf núna. Það þýðir ekki að stóla á erlenda ferðamenn í augnablikinu og við viljum ekki fá fjórðu bylgju faraldursins inn í landið.