151. löggjafarþing — 40. fundur,  17. des. 2020.

fjármálaáætlun 2021--2025.

2. mál
[20:21]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Skuldir ríkissjóðs eru mikið áhyggjuefni og munu halda áfram að hækka á næstu árum þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað. Óvissa um þróun efnahagsmála hefur síst minnkað við nýjar fréttir um að minna bóluefni komi til landsins á nýju ári en gert var ráð fyrir. Tölur um hagvöxt gætu orðið lægri og viðspyrnan dregist á langinn. Það er skýrt í þessari áætlun að ríkisstjórnarflokkarnir ætla ekki að bæta kjör eldri borgara. Fjárlög og fjármálaáætlun eru lituð af kosningum sem fram undan eru. Mikill halli ríkissjóðs mun draga efnahagsáhrif veirufaraldursins á langinn. Hagvöxtur þarf að vera mjög mikill ef ekki á að koma til niðurskurðar og skattahækkana. Sá hagvöxtur er ekki fyrirsjáanlegur, herra forseti. Þessa áætlun skortir trúverðugleika og samspil fjármálastefnu og peningastefnu er lítið.