151. löggjafarþing — 41. fundur,  17. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[21:01]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um fæðingar- og foreldraorlof. Það eru tímamót að við séum að taka til lokaafgreiðslu í þinginu og ræða við 2. umr. þetta mikilvæga framfaramál fyrir jafnrétti á Íslandi. Þetta er jafnframt mikið framfaramál í réttindum barna á Íslandi. Það er ánægjulegt að við umræðu, umsagnir og annað í hv. velferðarnefnd kom í raun fram mjög mikil, breið og góð samstaða um öll grundvallaratriði málsins, þ.e. við 12 mánaða fæðingarorlof og grundvallaratriði um jafnan rétt foreldra til fæðingarorlofs. Það er mikilvægt að nefna þetta hér í upphafi. Nefndin hefur jafnframt fjallað um ýmsar aðrar réttarbætur sem koma fram í nefndarálitinu og ég mun reifa hér á eftir.

Fyrir nefndina komu fjölmargir gestir og ég ætla ekki að lesa allan þann fjölda upp en þeirra er samviskusamlega getið í nefndarálitinu. Jafnframt bárust umsagnir frá álíka mörgum aðilum og komu fyrir nefndina. Ekki má heldur gleyma því að fyrir framlagningu málsins á Alþingi höfðu borist fjölmargar umsagnir um málið í samráðsgátt íslenskra stjórnvalda. Málið hefur því fengið ágætan tíma og ágæta umfjöllun í samfélaginu. Það má kannski sérstaklega nefna það einnig að fyrir rúmu ári síðan, held ég að mér sé óhætt að segja, fjallaði hv. velferðarnefnd einmitt um þetta sama mál þegar ákveðið var með bráðabirgðaákvæði að lengja fæðingarorlofið á þessu ári í tíu mánuði og fæðingarorlofið á næsta ári með bráðabirgðaákvæði í 12 mánuði. Síðan er gengið frá heildarlögunum hér.

Eins og þingmönnum er kunnugt er lagt til í frumvarpinu að samþykkt verði ný lög um fæðingar- og foreldraorlof sem leysa þá af hólmi 20 ára gömul lög. Lagt er til að réttindi fæðingar- og foreldraorlofs lengist í 12 mánuði og skiptist jafnt milli foreldra með einum framseljanlegum mánuði þeirra á milli. Því er fagnað sérstaklega að nú sé stigið þetta tímabæra skref í að lengja fæðingarorlofið. Það sem ég held að sé óhætt að segja að hafi tekið hvað mestan tíma í umræðu hv. velferðarnefndar voru atriði er sneru að skiptingu orlofsins. Þar komu fram fjölmörg sjónarmið og sýndist sitt hverjum. Ég held að engar ýkjur séu að segja að innan þings og úti í samfélaginu hafi sjónarmiðin um skiptingu legið alls staðar frá því að vera enginn áskilnaður um skiptingu milli foreldra yfir í það að vera niðurnjörvað í sex mánuði á hvort foreldri með engum skiptum. Frumvarpið gerði hins vegar ráð fyrir, eins og hefur verið nefnt, og gerir ráð fyrir að skiptingin sé einn mánuður á milli foreldra.

Í meðförum nefndarinnar komu einnig fram ýmis sjónarmið um þetta, bæði um aukin sveigjanleika en einnig um að ekki væri gengið nægilega langt í því að hafa skilin skörp og allt þar á milli. Niðurstaða meiri hlutans er sú að fara í skiptingarþættinum bil beggja, þ.e. að auka lítið eitt í þann tíma sem heimilt er að framselja á milli tveggja foreldra, úr fjórum vikum í sex vikur, en fara þó ekki alla þá leið að heimila heila tvo mánuði og alls ekki þá leið að hafa algjört frjálsræði í skiptingunni.

Mikilvægt er að hér komi fram að frammi fyrir nefndinni komu einmitt fram sjónarmið um að taka beggja foreldra á fæðingarorlofi skipti gríðarlega miklu máli með tilliti til þess hvernig börnum farnast þegar kemur fram í lífið. Það var sérstaklega athyglisvert að fá m.a. upplýsingar um það inn í nefndina að umönnunarþátttaka feðra hefði margvísleg jákvæð áhrif á líf barna, m.a. á hegðun og andlega líðan, þar með talið að hegðunarvandamálum drengja fækkaði við aukna þátttöku feðra og sjálfstraust stúlkna ykist við þá sömu þátttöku. Þetta er mjög mikilvægt og þess vegna ítrekar meiri hlutinn að hann væntir þess að þegar nýju lögin taka gildi reyni foreldrar eftir megni að taka réttinn eins jafnt út og kostur er, og við vonum að það raungerist, til að hjálpa okkur að ná þeim markmiðum sem þarna koma fram.

Með lengingu fæðingarorlofsins er hins vegar ekki allur björninn unninn, ef svo mætti að orði komast. Þegar fæðingarorlofi lýkur tekur við tímabil sem sumir hafa nefnt umönnunarbilið eða umönnunargjána eftir atvikum, þ.e. tíminn sem líður frá því að fæðingarorlofi lýkur og þangað til barni er tryggt leikskólapláss. Fáein sveitarfélög á Íslandi hafa þegar náð þeim árangri að geta tekið við börnunum að loknu fæðingarorlofi en við eigum langt í land sem þjóð og sem samfélag að ná því að fullu. Það er áfram samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga að loka þessu bili. Nefndin leggur áherslu á að þegar verði hafið samtal á milli ríkis og sveitarfélaga um þetta efni.

Í 9. gr. frumvarpsins og síðan einnig í 30. gr., sem fjallar um framsal á fæðingarstyrkjum eða réttinn til fæðingarstyrks, er fjallað um þær heimildir sem eru til framsals utan framsalsheimildarinnar sem er getið um í 1. mgr. 8. gr. Um þetta mál fór fram mikil umræða innan nefndarinnar og þá sérstaklega kannski um þann þátt sem snýr að nálgunarbanni. Þessi þáttur er mjög mikilvægur og nefndin ræddi töluvert. Ég held að ég fari yfir þennan þátt með því að lesa hreinlega þennan kafla nefndarálitsins enda er hann mikilvægur:

„Í 9. gr. frumvarpsins hvað varðar fæðingarorlof og 30. gr. hvað varðar fæðingarstyrk eru talin upp þau tilvik sem geta leitt til lengingar, framsals eða tilfærslu á sjálfstæðum rétti foreldris til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks, umfram þann mánuð sem gert er ráð fyrir að foreldri geti framselt til hins foreldrisins samkvæmt 8. gr., 26. gr. eða 27. gr. frumvarpsins. Að mati meiri hlutans er um að ræða mikilvæga réttarbót fyrir einstæða foreldra þar sem þau tilvik þar sem annað foreldrið getur fengið allan fæðingarorlofsréttinn eru útvíkkuð frá gildandi lögum. Réttur barns til að njóta allt að 12 mánaða fæðingarorlofs, þegar einungis annað foreldrið getur nýtt rétt sinn til töku fæðingarorlofs, er þannig tryggður.

Eitt þessara tilvika er að finna í 3. mgr. ákvæðisins og lýtur að því þegar foreldri er gert að sæta nálgunarbanni gagnvart barni sínu og/eða brottvísun af heimili og er af þeim völdum ófært um að annast barn sitt á fyrstu 24 mánuðunum eftir fæðingu þess eða eftir að barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Færist þá réttur þess foreldris utan þess réttar sem það hefur þegar nýtt sér yfir til hins foreldrisins. Á þetta við hvort sem foreldrar fara með sameiginlega forsjá eða ekki og skulu lögreglustjóri eða dómstólar staðfesta að foreldri muni sæta nálgunarbanni gagnvart barni sínu og/eða brottvísun af heimili á fyrrgreindu tímabili.

Nefndin ræddi töluvert hvort rétt væri að leyfa jafnframt tilfærslu réttar til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks ef foreldri sætir nálgunarbanni gagnvart hinu foreldrinu, en ekki gagnvart barninu. Í barnaverndarlögum er m.a. gert ráð fyrir því að sé barni háski búinn af háttsemi eða framferði manns svo sem vegna ofbeldis, ógnana eða hótana eða annars athæfis geti barnaverndarnefnd krafist þess fyrir dómi að viðkomandi verði bannað að koma á tiltekinn stað eða svæði, heimsækja eða setja sig með öðrum hætti í samband við barn. Enn fremur getur barnaverndarnefnd krafist þess fyrir dómi að manni verði bönnuð dvöl á heimili ef nefndin telur það nauðsynlegt vegna hagsmuna barns.

Í minnisblaði sem ráðuneytið sendi nefndinni vegna þessa var vísað til þess að málsgreinar 9. gr. frumvarpsins ættu það sameiginlegt að til staðar væri ákveðinn ómöguleiki á samvistum barns við foreldri vegna nánar tilgreindra ástæðna. Ávallt væru einhverjar aðstæður sem gerðu það að verkum að barn gæti ekki notið samvista við báða foreldra og þættu þessar tilteknu undanþágur 9. gr. því ekki ganga gegn markmiðum frumvarpsins um að tryggja barni samvistir við báða foreldra. Það hefði verið niðurstaða starfshópsins sem vann að samningu frumvarpsins að í ljósi framangreinds markmiðs væri ekki rétt að 3. mgr. 9. gr. tæki til tilvika þegar aðstæður væru með þeim hætti að samskipti foreldris við barn sitt teldust vera í lagi þrátt fyrir að foreldrið sætti nálgunarbanni gagnvart hinu foreldrinu. Foreldri gæti í ákveðnum tilvikum verið í góðum tengslum og samskiptum við barn sitt þrátt fyrir að sæta nálgunarbanni gagnvart hinu foreldrinu. Það hafi því verið mat starfshópsins að gengið væri gegn markmiðum laganna um að tryggja barni samvistir við báða foreldra ef málsgreinin yrði með þeim hætti að nægjanlegt væri að nálgunarbann gagnvart hinu foreldrinu væri til staðar. Því bæri að miða eingöngu við tilvik þar sem um væri að ræða nálgunarbann gagnvart barni.

Meiri hlutinn bendir á að réttur til fæðingarorlofs vegna fæðingar barns fellur niður er barnið nær 24 mánaða aldri skv. 2. mgr. 8. gr. Eigi foreldrar að sjá um uppeldi barns undir tveggja ára aldri í sameiningu og báðir að taka fæðingarorlof innan þeirra tímamarka er vandséð að mati meiri hlutans að unnt sé að virða nálgunarbann sem foreldri sætir gagnvart hinu foreldrinu á þeim tíma. Telja má að foreldri væri ómögulegt að afhenda ómálga barn sitt til hins foreldrisins án þess að koma á framfæri upplýsingum um þarfir þess á hverjum tíma og samskipti foreldra því óhjákvæmileg, hvort sem þau eru skrifleg, munnleg eða fyrir milligöngu fulltrúa barnaverndar eða ættingja, sem geti þar með falið í sér brot gegn nálgunarbanni. Í lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011, er fjallað um skilyrði fyrir beitingu úrræðanna. Meiri hlutinn áréttar að nálgunarbann er afar íþyngjandi úrræði sem ekki er beitt nema í ýtrustu neyð og ef sýnt þykir að önnur og vægari úrræði dugi ekki til. Ósætti eða ágreiningur milli foreldra getur þannig ekki eitt og sér leitt til þess að nálgunarbanni sé beitt. Þá getur sá sem nálgunarbann beinist gegn ávallt krafist þess að lögreglustjóri beri ákvörðunina undir dóm.

Með hliðsjón af framangreindu telur meiri hlutinn vandkvæðum háð að barn sé í reglulegri umgengni hjá báðum foreldrum þegar annað sætir nálgunarbanni gagnvart hinu. Þar af leiðandi telur meiri hlutinn sömu rök geta átt við í þessum tilvikum og þegar nálgunarbann beinist að barninu sjálfu. Í ljósi þess leggur meiri hlutinn til að ákvæði 3. mgr. 9. gr. gildi einnig í tilvikum þar sem nálgunarbann foreldris beinist gegn hinu foreldrinu. Leggur meiri hlutinn til sambærilega breytingu á 3. mgr. 30. gr.

Vakin er athygli á að nálgunarbann leiðir ekki eitt og sér til tilfærslu á rétti til fæðingarorlofs heldur er forsenda tilfærslu að nálgunarbannið geri því foreldri sem banninu sætir í raun ókleift að nýta þann rétt sem það á til töku fæðingarorlofs innan 24 mánaða frá fæðingu barns, töku þess í varanlegt fóstur eða því að barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu. Miðað við að foreldrið sem sætir banninu eigi rétt á sex mánaða fæðingarorlofi getur þar af leiðandi ekki komið til tilfærslu samkvæmt ákvæðinu nema nálgunarbann sé í gildi síðustu sex mánuði þess tíma, þ.e. þegar liðnir eru á bilinu 18–24 mánuðir frá fæðingu barns […] Hafi foreldri nýtt tvo mánuði af rétti sínum til töku fæðingarorlofs og framselt hinu foreldrinu einn mánuð leiðir nálgunarbann sem foreldrið sætir þannig ekki til tilfærslu fæðingarorlofs samkvæmt ákvæðinu nema að því marki sem nálgunarbannið gildir innan síðustu þriggja mánaða þess 24 mánaða tímabils sem heimild til töku fæðingarorlofs nær til. Skammvinnt nálgunarbann sem ákvarðað er snemma á því 24 mánaða tímabili nægir enda ekki til að uppfylla það skilyrði ákvæðisins að foreldri verði af þeim völdum ófært um að annast barn sitt á tímabilinu. Sé foreldri sem ekki hefur ráðstafað rétti sínum til töku fæðingarorlofs t.d. úrskurðað í eins mánaðar nálgunarbann þegar barn þess er þriggja mánaða gamalt getur foreldrið enn þá nýtt allan fæðingarorlofsrétt sinn innan 24 mánaða tímabilsins eftir að nálgunarbanni lýkur.

Með þeirri breytingu sem meiri hlutinn leggur til er litið svo á að brottvísun af heimili eða nálgunarbann, hvort sem það beinist að barni eða hinu foreldrinu, valdi því að foreldri sem úrskurður um slíkt beinist að teljist vera ófært um að annast barn sitt í skilningi ákvæðisins á gildistíma úrskurðarins. Áskilnaður ákvæðisins um að foreldri skuli af þeim völdum vera ófært um að annast barn sitt á fyrstu 24 mánuðum eftir fæðingu þess lýtur þannig eingöngu að þeim tímamörkum sem undir eru en ekki að mati á því hvort foreldri teljist fært eða ófært um að annast barn þrátt fyrir nálgunarbann eða brottvísun af heimili. Þá bendir meiri hlutinn á að 8. mgr. 9. gr. tekur til þeirra tilvika þar sem fyrirséð er að forsjárlaust foreldri muni ekki annast barn sitt á þeim 24 mánuðum sem réttur til töku fæðingarorlofs nær til þar sem foreldrið hafi ekki umgengni við barnið á grundvelli niðurstöðu lögmælts stjórnvalds, eða þegar fyrir liggur niðurstaða um að umgengni forsjárlausa foreldrisins við barnið skuli vera verulega takmörkuð, svo sem undir eftirliti. Er Vinnumálastofnun þá heimilt að færa ónýttan rétt forsjárlausa foreldrisins til fæðingarorlofs til forsjárforeldrisins. Sambærilegt ákvæði um fæðingarstyrk er í 8. mgr. 30. gr. frumvarpsins. Að mati meiri hlutans er með þessu móti nægjanlega tryggt að orlofsrétturinn færist á milli foreldra nógu snemma til að ekki þurfi að koma til óæskilegs rofs á samfelldu fæðingarorlofi í þeim tilvikum þar sem aðstæður eru með þeim hætti að tilfærslan sé nauðsynleg.“

Við umfjöllun nefndarinnar komu fram hugmyndir um svokallað meðgönguorlof, þ.e. orlof eins og tíðkast í einhverjum löndum í kringum okkur þar sem barnshafandi foreldrinu er gert kleift að fara í orlof einum mánuði fyrr, þ.e. fyrir fæðingu sem telst þá ekki sem eiginlegt fæðingarorlof heldur meðgönguorlof og verður ekki til styttingar á fæðingarorlofinu. Eins og ég sagði kom þetta fram fyrir nefndinni. Meiri hlutinn telur hins vegar að þær heimildir sem þegar eru fyrir hendi í lögum og í 17. gr. frumvarpsins til lengingar fæðingarorlofs sé barnshafandi foreldri nauðsynlegt af heilsufarsástæðum sem tengjast meðgöngunni að fá leyfi frá störfum eða að hætta þátttöku á vinnumarkaði þá sé hægt að fá vottorð sérfræðilæknis þar um. Orlofið getur á grundvelli þessa ákvæðis lengst um allt að tvo mánuði ef mig misminnir ekki illa.

Það voru nokkrar vangaveltur fyrir nefndinni um hvort vottorð sérfræðilæknis þýddi að einungis fæðingar- og kvensjúkdómalæknar gætu skrifað upp á slík vottorð. Auðvitað er það ekki þannig heldur getur sérfræðingur í heimilislækningum alveg eins gert það eins og á við víða úti á landi. Það kom jafnframt fram á fundum nefndarinnar að konur á vinnumarkaði hafa auðvitað kjarasamningsbundin rétt til veikindaleyfis eins og aðrir og telji læknir viðkomandi konu að það sé heilsu hennar fyrir bestu að hætta að vinna áður en meðgöngu lýkur geti hún fengið vottorð þess efnis.

Í næsta kafla álitsins er fjallað um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og viðmiðunartímabil við útreikninga á greiðslum. Umræðan um greiðslur úr sjóðnum er ekki ný af nálinni, hefur nokkuð verið rædd og var töluvert rædd í nefndinni, þ.e. annars vegar það sem hefur verið kallað gólfið í fæðingarorlofsfrumvarpinu og hins vegar það sem hefur verið kallað þakið. Gólfið er þá t.d. þær greiðslur sem einstaklingur á vinnumarkaði á lágmarkslaunum getur lægst farið niður í. Til að mynda getur einstaklingur sem hefur 350.000 kr. í mánaðarlaun hæst fengið 280.000 kr. út úr sjóðnum á mánuði. Rætt var um þetta í nefndinni og komu fram upplýsingar um að þeir tveir hópar sem í dag væru kannski líklegastir til að fyrirgera að einhverjum hluta rétti sínum til fæðingarorlofs væru annars vegar tekjuhæstu hóparnir og hins vegar tekjulægstu hóparnir. Þetta var nokkuð rætt. Auðvitað eru þetta atriði sem skipta miklu máli. Meiri hlutinn telur að næstu skref eigi að vera þau að huga að því hvort gólfið þurfi ekki að hækka, þ.e. eftir að við erum búin að auka í 12 mánuði og síðan að meta hvort þakið eigi að hækka líka. Bráðabirgðaákvæði sem við leggjum til í breytingartillögu á einmitt að líta m.a. til þessara þátta, þ.e. hvort bregðast þurfi við þessum lögum með þeim hætti að breyta þeim eftir tvö ár leiði niðurstaðan í ljós að annaðhvort hafi gerst, að foreldrar taki einhverra hluta vegna ekki 12 mánaða fæðingarorlof í heild og börnin fái þá ekki að njóta þessara samvista með foreldrum sínum eða hins vegar að mikil skekkja verði í því hversu mikið annað kynið tekur fæðingarorlof umfram hitt. Þetta eru mjög mikilvægir þættir vegna þess að fæðingarorlofslögin eru, eins og við þekkjum og alla vega að mínu mati, í aðra röndina a.m.k. og kannski að miklu leyti, mikið jafnréttistæki. Passa þarf vel upp á þessa þætti.

Í 43. gr. kemur fram að sé barnshafandi foreldri nauðsynlegt að mati sérfræðilæknis að dvelja fjarri heimili sínu í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barns sé heimilt að greiða foreldrinu sérstakan styrk í allt að 14 daga fyrir áætlaðan fæðingardag barns enda dvelji foreldri fjarri heimili sínu þá daga. Um þetta var mikið fjallað eins og kemur fram í álitinu. Það kom í ljós í umsögnum að þetta heimildarákvæði væri ekki nægilega vítt og að auka þyrfti rétt fæðandi foreldris umfram það sem þarna stendur. Nefndin leysir það í rauninni á tvennan hátt, annars vegar með því að þessi 14 daga réttur fyrir fæðingu er tryggður en jafnframt er tekið fram í breytingartillögunum að rétturinn gildi síðan fram að þeim tíma þegar barnið fæðist. Þannig er tryggt að fæðandi foreldri, sem þarf t.d. að fara af sunnanverðum Vestfjörðum á fæðingarstað fjarri heimili sínu en fæðir ekki nákvæmlega á tilsettum degi, getur treyst því að stuðningurinn varir þangað til barnið fæðist og þá tekur fæðingarorlofið við hjá þeim einstaklingi.

Fyrir fjölburafæðingar þurfti einnig að auka við þessi réttindi. Eins og þingmönnum er vafalítið kunnugt þá er það algengara en ekki að fjölburameðgöngum ljúki fyrir 40. viku og oftast í kringum 37. til 38. viku. Þess vegna þarf að flytja þennan rétt framar hjá foreldrum sem ganga með fjölbura. Þessi vottorð þarf að gefa út eftir mat sérfræðilæknis en líka er tekið fram að þurfi lengra vottorð séu heimildir til veikindavottorða og lengingar fæðingarorlofs að auki áskilin eins og kemur fram í 17. gr.

Dálítið var rætt um foreldraorlof í nefndinni og eins og þingmönnum er kunnugt er líka verið að bæta í foreldraorlofið og lengja það um úr þremur mánuðum í fjóra. Hins vegar kom fram á fundum nefndarinnar að við vitum í rauninni ekki mikið um það hversu mikið foreldraorlofið hefur verið notað vegna þess að það hefur hreinlega ekki mikið verið skráð og hefur jafnvel ekkert verið skráð hjá opinberum aðilum. Með samþykkt frumvarpsins verður áskilnaður um að Vinnumálastofnun skuli einnig skrá töku foreldraorlofs. Þá verður hægt að meta hvort það nýtist sem það tæki sem því er ætlað samkvæmt lögunum, að gefa foreldrum kost á að vera meira með börnum sínum. Ég sé fyrir mér að foreldraorlofið geti til að mynda nýst foreldrum sem hafa tök á að taka sér frí hluta af sumri þegar börnin eru kannski hvað yngst. Það er hægt að nýta foreldraorlofið til átta ára aldurs. Sá galli er náttúrlega á foreldraorlofinu, eins og þingmenn þekkja, að það er ekki launað. Þetta er réttur til ólaunaðs orlofs. Og í rauninni má segja að það gæti þá verið næsta skref að fara að huga að því hvort ekki sé ástæða til að a.m.k. skoða hvort ekki mætti hafa foreldraorlofið launað að einhverju leyti.

Aðrar breytingartillögur en þær sem ég hef hér rakið eru fyrst og fremst fallnar til þess að auka skýrleika, til að mynda á gildistöku laganna og þess háttar, og síðan eru breytingar sem eru tæknilegs eðlis sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Með vísan til þessa alls leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru fram á sérstöku þingskjali. Undir meirihlutaálitið skrifa hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson, Ásmundur Friðriksson, Guðmundur Ingi Kristinsson, með fyrirvara, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Vilhjálmur Árnason, með fyrirvara.

Ég vil í lok ræðu minnar þakka velferðarnefnd fyrir vinnuna við þetta mál og í rauninni öllum umsagnaraðilum, bæði þeim sem sendu umsagnir til þingsins og einnig inn á samráðsgáttina. Það er mikilvægt í svona mikilvægu máli eins og þessu að samfélagið allt fái að koma að því eins og hægt er. Ég tel að það hafi heppnast ágætlega og að sú lending sem við náum í málinu sé ágætlega ásættanleg.

Ég hef þessi orð ekki fleiri, herra forseti, en fagna því að málið sé komið til afgreiðslu hér í þinginu og hlakka til umræðunnar.