fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur andsvarið. Eins og ég gat um í framsögu minni og þingmanninum er kunnugt um þá var þetta töluvert rætt í hv. velferðarnefnd. Þingmaðurinn spyr sérstaklega út í hvort það geti verið barni fyrir bestu, við þær aðstæður þar sem verið hefur ofbeldissamband milli foreldra, að umgangast ofbeldisforeldrið í þessu tilviki. Ég held að svo sé alveg örugglega ekki en ég tel jafnframt að 8. mgr. 9. gr. sé til þess fallin að ná utan um slík tilvik, þ.e. að tryggja að framsalið á fæðingarorlofinu til forsjárforeldrisins sé tryggt og þar með sé ekki neinn réttur eftir hjá þessu sama foreldri þegar að þessu kemur, til að mynda við 16. mánuð. Ég hef bæði í samtölum við lögfræðinga og ráðuneytið fengið vissu fyrir því að það sé hugsunin á bak við þessa síðustu málsgrein 9. gr., að grípa þessi tilvik til að tryggja að barnið fái samfellt fæðingarorlof með foreldrum sínum á grundvelli þessara laga.