151. löggjafarþing — 41. fundur,  17. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[21:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Ólafur Þór Gunnarsson) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Síðasta málsgrein 9. gr. frumvarpsins hljóðar svo:

„Ef fyrirséð er að forsjárlaust foreldri“ — eins og t.d. foreldrið sem hv. þingmaður var að vísa til hér áðan — „muni ekki annast barn sitt á fyrstu 24 mánuðunum eftir fæðingu þess eða á fyrstu 24 mánuðunum eftir að barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur þar sem foreldrið hefur ekki umgengni við barnið á grundvelli niðurstöðu lögmælts stjórnvalds eða dómstóla, er Vinnumálastofnun heimilt að færa rétt forsjárlausa foreldrisins til fæðingarorlofs, sem stofnast hefur til skv. 1. mgr. 8. gr., og foreldrið hefur ekki þegar nýtt sér, yfir til forsjárforeldrisins, enda sæki forsjárforeldrið um tilfærsluna til Vinnumálastofnunar.“

Jafnframt segir:

„Hið sama á við liggi fyrir niðurstaða lögmælts stjórnvalds eða dómstóla um að umgengni forsjárlausa foreldrisins skuli vera verulega takmörkuð,“ til að mynda niðurstaða barnaverndarnefndar eða annarra lögmætra yfirvalda.

Ég tel að þessi málsgrein, 9. gr. sé, ef eitthvað er, betur til þess fallin að ná utan um þessi börn. Samkvæmt þeirri málsgrein er ekki krafist dómsúrskurðar um nálgunarbann heldur dugar til að foreldrið sem ekki hefur forsjá sé ekki metið hæft af lögmæltum stjórnvöldum til að sinna hlutverki sínu. Þá verður restin af fæðingarorlofi þess framseld. Eins og við getum um í nefndarálitinu er það mat meiri hlutans að það verði gert á þeim tíma að þessi börn þurfi ekki að sæta óhóflegu rofi á fæðingarorlofi, eins og það er orðað í nefndarálitinu.