fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur andsvarið og spurningarnar. Þingmaðurinn spyr hver mín afstaða sé til skiptingarinnar og hvaða áhrif ég telji að þetta hafi á jafnan rétt og stöðu kvenna á vinnumarkaði. Ég held að við verðum að horfa til þess sem er ákveðið í þessum lögum sem var ekki ákveðið í fyrri lögum, þ.e. að núna er lagalega skilgreindur réttur til sex mánaða hjá báðum foreldrum. Það er breyting frá fyrri lögum og ég bind vonir við það a.m.k. að þetta muni skipta máli. Það var þannig í fyrri lögum að karlmenn tóku nákvæmlega lögbundna réttinn sinn en sá hluti fæðingarorlofsins sem var skilinn eftir óskiptur lenti nær allur hjá konum.
Hér er stigið skref í þá átt að auka við þann rétt sem er, eigum við að segja geirnegldur annars vegar og síðan skilgreindur hins vegar. Ég held að þetta muni skipta máli fyrir jafnrétti í landinu. Ég held að þetta muni hafa, alla vega til lengri tíma litið, áhrif á launamun kynjanna í jákvæða átt, þ.e. að hann minnki og helst hverfi. En til að taka af allan vafa um að við komumst á þann áfangastað sem ég og hv. þingmaður sannarlega viljum komast á þá er sett inn þetta bráðabirgðaákvæði til þess einmitt að horfa sérstaklega eftir þessum þáttum, horfa til þess hvort það takist (Forseti hringir.) með lagaáskilnaði eða lagalegum rétti til sex mánaða að hvetja nægilega mikið (Forseti hringir.) til að taka lengra fæðingarorlof fremur heldur en að þurfa að geirnegla það niður í að það verði að taka sex mánaða fæðingarorlof.