fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hún spyr hvort hér sé meiri háttar stefnubreyting á ferðinni hjá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Svo er ekki. Hvernig hv. þingmaður blandar Miðflokknum inn í þetta dæmi skil ég ekki alveg. Miðflokkurinn er með sérnefndarálit þar sem þeir leggja til skiptinguna núll, tólf. Ég átta mig ekki alveg á því í hvaða samhengi það er nefnt, en látum það liggja á milli hluta. Ég get ekki séð að það að breyta 52 vikna orlofi, að hreyfa til tvær vikur í 52 vikna orlofi þar sem lögbundið er sex mánaða orlof fyrir bæði kynin, að breyta framsalinu um tvær vikur sé einhver kúvending á stefnu. Það er það alls ekki. Það er hins vegar rétt að minna hv. þingmann á það að í meðförum málsins, bæði í samráðsgátt og fyrir þingnefndinni, komu fram mjög mismunandi sjónarmið um hvað væri rétta skiptingin, eins og ég nefndi áðan, allt frá engri og upp í absolút sex mánuði á hvort. Það má segja að það að hreyfa til tvær vikur í skiptingunni sé fyrst og fremst leið nefndarinnar til að nálgast mismunandi sjónarmið sem eru ekki bara í þinginu heldur jafnframt í samfélaginu. (Gripið fram í.)