fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Söru Elísu Þórðardóttur fyrir ágæta ræðu og innlegg í umræðuna. Mig langar sérstaklega að spyrja þingmanninn út í síðasta kafla ræðunnar um það sem hún kallaði mæðraorlof, en hefur stundum líka verið kallað meðgönguorlof, ég geri ráð fyrir að þar séum við að tala um sama hlutinn. Það er rétt hjá þingmanninum að meðganga er í eðli sínu ekki veikindi. Hins vegar er afar vel þekkt, a.m.k. á Íslandi, að verðandi mæður fái veikindavottorð, hvort sem það er kallað af heilsufarsástæðum, tiltölulega lítt skilgreindum, eða þá vegna einhverra tiltekinna veikinda. Þetta gerist oftast á síðustu á síðustu vikum og mánuðum fyrir fæðingu.
Ég velti fyrir mér: Er þingmaðurinn hugsa út í að það meðgönguorlof sem hún nefnir, segjum t.d. að það byrjaði í 36. viku, eitthvað þess háttar, væri þá á sambærilegum forsendum og fæðingarorlofið sem hæfist síðan eftir fæðingu og þá með þeim skerðingum og öðru sem þar væri? Eða hugsar þingmaðurinn sér að þetta meðgönguorlof væri með sömu réttindum og sömu launum og veikindaréttur er í dag?