fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni fyrir andsvarið. Já, hvaða skerðingar kæmu til? Það sem ég persónulega myndi vilja sjá væri að það yrðu engar skerðingar. Þetta væri ekki eins og veikindaorlof, svo við tökum þetta úr sambandi við veikindi. Það væri frekar tengt fæðingarorlofinu sjálfu. En eins og kemur fram í breytingartillögunni þá myndum við 3. minni hluta vilja að það yrðu engar skerðingar, sérstaklega ekki í gólfinu hvað þetta varðar. Þannig að nei, í fullkominni veröld væri þetta raunverulega einn mánuður í viðbót, en hann væri þá fyrir þann sem gengur með barnið og fæðir og út frá þessum læknisfræðilegu forsendum.
Hv. þingmaður talaði um vottorð. Ég held að við vitum að flestar konur sem fara til læknis, hvort sem er til heimilislæknis eða annars sérfræðings, biðji um vottorð á þessum tíma meðgöngu. Í langflestum tilfellum fá þær það örugglega skrifað út. Þess vegna finnst manni það rosaleg tímaskekkja í tíðarandanum að hafa þá vottorðið yfirleitt tengt. Jafnvel þótt það sé ekkert mál að fá vottorð, til hvers þá að þurfa það?