fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanninum svarið. Á vinnumarkaði í dag er rétturinn til veikindaorlofs eða veikindarétturinn þannig að það eru ekki neinar skerðingar í því. Sá eða sú sem tekur sér veikindaleyfi fær öll launin sín. Það er ekki nein 20% skerðing á því þannig að, alla vega miðað við það fyrirkomulag sem er á fæðingarorlofinu og ef ég skil breytingartillögu þingmannsins rétt, er væntanlega verið að hugsa að þetta sé með sambærilegu fyrirkomulagi og fæðingarorlofið og þá væntanlega líka með sömu skerðingum og fæðingarorlofið, þó að það sé kannski ekki beint tekið fram í tillögunni.
En hvað um það, ég met það þannig, alla vega í þeirri stöðu, að það sé a.m.k. efnahagslega hagkvæmara fyrir fjölskyldu viðkomandi eða viðkomandi verðandi foreldri að fá 100% laun á þessum tíma í gegnum veikindadaga en að fá minna af laununum sínum eins og það væri ef þetta væri ígildi fæðingarorlofs sem við mundum kalla meðgönguorlof. Á hinn bóginn deili ég þeim skoðunum með þingmanninum að við erum ekki komin á fullkominn stað í jafnrétti. Þess vegna þykir mér það að hnika til um tvær vikur í framsalsréttinum alveg kappnóg. Ég held að áhyggjur þingmannsins og fleiri af jafnréttisvinkilinum séu alveg réttmætar og þess vegna sé skynsamlegra að fara fetið í að auka framsalið frekar en að bakka um heilan mánuð.