fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Núna skil ég betur fyrri spurningu hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar og ætla þá að bregðast ítarlega við henni. Já, vissulega, ef það væri skerðing með sama fyrirkomulagi og í fæðingarorlofinu væri aftur kominn hvati til þess að taka veikindaorlof frekar en það. Og það væri náttúrlega neikvæð niðurstaða. Þá ætti það að vera orlof eins og veikindaréttur og með sömu skilyrðum, þ.e. að fyrirkomulagið hallaði sem minnst á fjárhagslega innkomu heimilisins. Það væri náttúrlega draumastaða að konur gætu fengið hvíldarmeðgönguorlof en samt verið með þau réttindi sem veikindaréttur veitir.
Hv. þingmaður kom aðeins inn á framsalið í seinna svari. Já, já, ég skil það sjónarmið. Ég vil líka nota tækifærið aðeins til að koma inn á samræðurnar sem verið hafa um þetta mál. Flestir eru sammála um hvað er gott í því. Kynjajafnrétti er gott, sveigjanleiki er góður og ég held það skilji allir rök hvers annars í þessu máli þegar á botninn er hvolft. En það eru hins vegar mjög ólíkar nálganir að markmiðunum, ólíkir útgangspunktar til að komast að þeim markmiðum. Útgangspunkturinn hjá 3. minni hluta er fyrst og fremst barnið, svo vinnumarkaðurinn. Við þurfum auðvitað alltaf að horfa á heildarmyndina. En ef það þarf að velja útgangspunkt þá viljum við að það sé barnið og það er það sem breytingartillaga okkar snýst um.