fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég var reyndar á svipuðum slóðum og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson varðandi þetta með að hefja töku fæðingarorlofs fyrr og hvort ekki væri réttara að það væri eins og það er í dag, þ.e. sem veikindaréttur. Ég er nefnilega svolítið hugsi yfir þessu en ég skil pælinguna ef svo má að orði komast. Ég sé t.d. að Ljósmæðrafélagið hefur talað fyrir því að konur eigi rétt á orlofi frá 36. eða 37. viku eða eitthvað þess háttar án þess að það skerði sjálft fæðingarorlofið. Ég sjálf hefði persónulega óttast að það eitt og sér gæti haft áhrif á jafna stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Ég veit alla vega að mér leið þannig á sínum tíma að ég væri hraust og gæti unnið alla meðgönguna. Ég vildi einhvern veginn ekki sýna fram á að ég þyrfti að hverfa frá fyrr en fæðingarorlofið tæki gildi.
Ég held að við þurfum aðeins að hugsa þessar vangaveltur betur. Ef aðstæður eru þannig að konan á erfitt með að sinna vinnu sinni þá er vinnuveitanda auðvitað skylt að koma til móts við hana eins og kostur er með því að breyta háttum á vinnustað og annað. Nú hygg ég að margar konur fái skrifaðan veikindarétt á síðustu vikunum en það er oft hlutaréttur líka. Oft er það þannig að konur minnka við sig vinnu.
Nú veit ég ekki hvort hv. þingmaður hafi skoðað það eða hvort fyrir nefndinni hafi legið eitthvert hlutfall kvenna, hvort þær tölur liggi fyrir yfir höfuð en ég held að áhugavert væri að skoða það áður en við færum að lögfesta hér einhverja breytingu í þeim efnum. Ég óttast að það gæti haft einhver áhrif. Kannski er ég svona forpokuð miðaldra kona en ég upplifi alla vega að það sé samkeppni um framgang á vinnumarkaði. Allt svona getur haft mjög mikil áhrif á það. Það hefur bara (Forseti hringir.) gríðarleg áhrif á menninguna á vinnustaðnum og þess vegna óttast ég þetta.