fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Ég skil hvað hv. þingmaður á við og þá erum við jafnvel kannski bara komin aftur í ákveðið, með leyfi forseta, „catch 22“, í ákveðna „lúppu“. Við værum að reyna að leysa eitthvað þar sem hallaði á konur á vinnumarkaði en með úrlausninni myndi aftur halla á konur á vinnumarkaðnum. Þannig að oft er þetta svolítið flókið mál og í mörg horn að líta. Ég skil hvað hv. þingmaður á við í þeim efnum og ég hef eiginlega ekki alveg svörin við því. Ég held að því miður sé bara ekkert okkar algjörlega með þau enn sem komið er.
En svo að ég fari aðeins út fyrir efnið jafnvel, en samt ekki, er ég búin að hugsa um að þetta snýr að konum á barneignaraldri, konum á vinnumarkaðnum sem hafa þann líffræðilega möguleika að fjölga mannkyni. Við ákveðinn aldur dregur yfirleitt úr barneignum hjá konum. Karlar eru í barneign til 105 ára aldurs. Ég velti fyrir mér að ef við erum raunverulega enn þá að sjá halla á konur í kringum ákveðinn aldur í ráðningarsamningum en ekki á karla af sömu ástæðu, þó að þeir séu nú þegar að taka feðraorlof og foreldraorlof og eigi stundum veik börn líka sem þarf að taka frí vegna, þá fer maður kannski að halda að vandamálið sé bara miklu stærra, meira og alvarlegra en maður hélt fyrir.
En ég tek undir þessa upplifun, ég tengi við þessa upplifun hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um það að vilja standa sig 100%, geta það jafnvel (Forseti hringir.) og vilja ekki láta neinn bilbug á sér finna. Við þurfum greinilega öll sem samfélag að vinna að þessu. Þetta er stórt mál.