fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegur forseti. Það er einmitt á þeim forsendum sem ég hallast að því að fyrirkomulag eins og það er í dag sé betra. Ég myndi alla vega mæla með því að við skoðuðum það frá fleiri hliðum áður en við færum þá leið að vera með einhvers konar orlof á síðustu mánuðum meðgöngu.
Hv. þingmaður kom inn á að við skildum örugglega sjónarmið hvor annarrar í þessu þegar við erum að ræða um eitthvað sem ég ætla að leyfa mér að kalla lúxusvandamál, hvernig við skiptum þeirri frábæru framför sem 12 mánuðir í fæðingarorlof eru. Hv. þingmaður talar fyrir svokallaðri fjórir, fjórir, fjórir leið og ég get alveg skilið orðræðuna sem lýtur að því að við eigum að auka frelsi fjölskyldunnar. Ég skil það mjög vel. Mér þykir samt sú orðræða oft og tíðum hafa farið út í það að konan eigi að eiga rétt á meiru vegna þess að hún gengur jú með og fæðir barnið.
Ég átti samtal við hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur í 1. umr. og fékk á mig andsvar frá henni sem var svolítið í þá átt að við myndum aldrei jafna þessa stöðu, það verði alltaf þannig að konan sé ófrísk, gangi með og fæði og einhvern veginn væru það rök fyrir því að konan ætti rétt á stærri hluta fæðingarorlofsins. Ég verð að segja að þessu sjónarmiði er ég ekki sammála þegar við erum komin með alla vega sex mánuðina. Ég skil það og það er auðvitað þannig að sú sem fæðir barn á að vera frá alla vega fyrstu tvær vikurnar. Fyrstu tvær vikurnar, jafnvel upp í mánuð, er bara viðurkenndur sængurlegutími. En ég á svolítið erfitt með að sætta mig við að umræðan sé farin að snúast um að móðirin eigi að eiga meiri rétt. Þá velti ég fyrir mér: Hvað erum við þá að segja við feður í dag? Eru þeir ekki fullfærir um að sinna barni frá, segjum sex mánaða aldri? Reyndar alveg frá fæðingu en það er þetta með brjóstin og brjóstamjólkina sem skilur okkur einna helst að í þeim efnum. En kannski ef hv. þingmaður vildi aðeins koma inn á hvort við erum bara að tala um (Forseti hringir.) frelsi fjölskyldunnar eða um aukinn rétt kvenna.