fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að bregðast við. Þá kemur aftur að því, sem ég kom inn á í fyrra svari mínu við andsvari, að það er nálgunin sem er ólík. Upphafspunktur umræðunnar er ólíkur hjá mér og hv. þingmanni og hv. þingmönnum. Það er horft út frá vinnumarkaðsmálum kvenna og út frá stöðu þeirra á vinnumarkaði. Við erum öll alveg hjartanlega sammála um að það er rosalega mikilvægt að laga og leiðrétta alla þá hluti sem leiða til þess að það hallar á konurnar. Það er gjörsamlega fáránlegt að árið 2020 skuli staðan vera sú að við þurfum að eyða öllu þessu karpi í þessa hluti þegar staða kynjanna á vinnumarkaði á auðvitað bara að vera jöfn. Öll kyn hafa jafn mikið fram að færa og að koma með til borðsins.
Þá erum við komin aftur að inngangspunktinum. Við í 3. minni hluta viljum nálgast þetta út frá barninu, út frá þörfum þess og að ef þarf að velja fái hagsmunir barnsins að njóta vafans í ríkara mæli en hagsmunir foreldris og hvað þá vinnumarkaðarins, þó að ég geri mér grein fyrir að þetta er allt samtengt. Ef við tökum dæmi um barn þar sem bara móðirin eða bara faðirinn hefur tækifæri á því að taka fæðingarorlof en hitt foreldrið hefur það ekki þá er staðreyndin sú að barnið fengi skertan tíma með foreldri og það væru einhverjir efnahagslegir hvatar sem yllu því. Við erum að tala um að þarna fengi barnið í upphafi lífsins (Forseti hringir.) minni tíma með foreldri sínu út af því að við værum að reyna að leiðrétta stóru myndina, sem líka þarf að leiðrétta. Þarna er eiginlega bara (Forseti hringir.) pólitískur grunnur.
Svo er þetta með að brúa bilið. (Forseti hringir.) Það þarf að brúa bilið líka, það þarf að lengja þennan tíma. Það er ekki búið.