151. löggjafarþing — 41. fundur,  17. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[23:48]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hegg eftir einu í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar, hann fullyrðir að réttur til fæðingarstyrks og fæðingarorlofs sé til 18 mánaða aldurs í frumvarpinu og að Miðflokkurinn leggi til að hann nái til 24 mánaða aldurs. Nú held ég að hv. þingmaður þurfi að lesa þetta aðeins aftur því að í tillögum undirbúningshópsins voru lagðir til 18 mánuðir en í frumvarpinu var því breytt í 24 mánuði. Mig langar bara til að spyrja hv. þingmann hvort þetta sé ekki bara misskilningur eða hvort hann þurfi að lesa þetta eitthvað betur.