fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Það mál sem hér er til umræðu í kvöld, og að mér sýnist fram á nótt, er í senn grundvallarlöggjöf um stuðning við foreldra og grundvallarlöggjöf um jafnrétti kynjanna. Það frumvarp sem kom upphaflega fram frá hæstv. félags- og barnamálaráðherra var einmitt í þessum anda, löngu tímabær lenging orlofs í 12 mánuði, sem er jákvætt og þarft skref. Frumvarpið speglaði um leið framsækna jafnréttispólitík. En síðan þá hefur margt gerst og átakalínurnar hafa orðið skýrar og ég verð að viðurkenna að það eru mér vonbrigði að hafa fylgst með og hlustað á talið inni í þessum sal og á göngum þingsins og að aðeins 20 árum eftir að tímamótalöggjöf um fæðingarorlof var samþykkt séum við í alvörunni að rökræða jafn mikil grundvallarmál og það hvort tryggja eigi foreldrum sjálfstæðan rétt eða ekki, að heyra þær raddir hér inni að engin þörf sé á því, að hér sé fólk sem trúir því að framseljanlegt fæðingarorlof merki það sama og frelsi. Það er mikill misskilningur og virðir algerlega að vettugi það grundvallaratriði að kynin búa við ólíkan veruleika, ólíkar kröfur og ólíkar aðstæður og auðvitað eru flokkar á þingi sem trúa því að þannig sé veruleikinn.
Ég verð að segja að það er fróðlegt að sama dag og hæstv. forsætisráðherra fagnaði nýjum jafnréttislögum þá séum við hérna inni í þessum barningi um þetta mál, þ.e. hvað varðar skiptingu fæðingarorlofs. Skiptingin er algjört grundvallaratriði fyrir jafnrétti kynjanna og stöðu kynjanna á vinnumarkaði, stöðu kynjanna inni á heimilunum, stöðu kynjanna sem foreldra. Ég vil nefna að staða ungra kvenna á vinnumarkaði er sú sem hún er á Íslandi í dag vegna þess að hér á landi hafa verið markvissar aðgerðir, markviss lagasetning, til að stuðla að jafnrétti og staða ungra karlmanna er á Íslandi sú sem hún er vegna löggjafar eins og þessarar.
Sú var tíðin að feður voru einfaldlega ekki inni í myndinni varðandi eiginlegt hlutverk sem foreldrar inni á heimilum, sem hefur síðan haft áhrif á réttarstöðu þeirra, t.d. í forsjármálum, og allt helst þetta í hendur. Ég lít svo á að jafnréttislöggjöfin sem samþykkt var hér í dag væri orðin tóm ef við samþykktum tillögur á borð við þær að 12 mánaða fæðingarorlof yrði reyndin án þess að við tryggðum foreldrum sjálfstæðan rétt í þeim efnum. Ég styð þetta mál. Ég var hrifnari af því í upphaflegri mynd en ég er núna og er á móti þeim breytingum sem þar eru lagðar til.
Ísland trónir efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir kynjajafnrétti. Það höfum við gert í rúman áratug og af því getum við og eigum að vera stolt. En þessi staða getur auðvitað leitt til þess, og mér sýnist að hún leiði til þess, að hér trúa því einhverjir að við séum komin í höfn hvað varðar kynjajafnrétti og þetta erum við að heyra, eins og ég segi, hér í kvöld í umræðunni en ekki aðeins frá hefðbundnum röddum heldur frá fulltrúum ótrúlegustu flokka. Í því sambandi held ég að við ættum að staldra við og spyrja einfaldlega: Hver er staða jafnréttis kynjanna á Íslandi? Því að þrátt fyrir góðan árangur í kynjajafnrétti vitum við öll að við erum þjóð sem hefur haft konu sem forseta einu sinni, konu sem forsætisráðherra tvisvar í allri okkar sögu og enn hefur heldur aldrei gerst að hlutfall kynjanna sé jafnt á þingi. Kannski er það tilviljun. Kynjahlutfall í dómstólum og Hæstarétti hefur alltaf verið konum í óhag og þess vegna skiptir nýleg skipun tveggja kvenna í Hæstarétt miklu. Kynbundinn launamunur er og hefur verið vandamál á Íslandi rétt eins og annars staðar í heiminum. Forstjórar í fyrirtækjum eru í miklum meiri hluta karlmenn þótt við séum með lög um kynjakvóta í stjórnum. Konur hafa samt ekki komist á toppinn.
Staðan á Íslandi í jafnréttismálum er vissulega mjög góð og góð í samanburði við önnur ríki. En þegar við rýnum sviðið, t.d. hvað varðar stöðu kvenna á vinnumarkaði og um launamun þá blasir við að kynjajafnrétti hefur ekki náðst. Þess vegna skiptir svo miklu máli að halda fast í það að veita báðum foreldrum sjálfstæðan rétt til töku fæðingarorlofs. Vissulega erum við ansi nálægt því í þessu frumvarpi og það er í sjálfu sér og vitaskuld gleðilegt. Ég hefði viljað sjá okkur ganga lengra þar.
Því má nefnilega ekki gleyma að hinn góði árangur Íslands í jafnréttismálum náðist ekki bara fram með tímanum. Tíminn hefur ekki leitt okkur hingað, ekki biðin heldur, við náðum þeim góða árangri með baráttu og þar held ég að löggjafinn geti klappað fyrir sjálfum sér með því að viðurkenna það að hluti af þeim góða árangri sem Ísland státar af stafar af framsækinni lagasetningu. Við eigum framsækin fæðingarorlofslög, framsækin lög um jafnlaunavottun, lög um kynjakvóta í stjórnum. Við erum meðvituð um þýðingu þess að dagvistun sé aðgengileg. Allt þetta regluverk hefur sama tilgang og markmið: Að búa til samfélag þar sem jafnrétti ríkir. Í því ljósi ættum við að horfa á frumvarp um fæðingarorlof sem Alþingi hefur nú til meðferðar, þessa löggjöf sem lengir fæðingarorlof foreldra og tryggir báðum foreldrum sjálfstæðan rétt til orlofs í þeim tilvikum þar sem tveir foreldrar eru til staðar.
Nú eru 20 ár frá því að gildandi lög um fæðingar- og foreldraorlof voru sett og með þeirri lagasetningu var feðrum í fyrsta sinn tryggður þriggja mánaða sjálfstæður réttur til fæðingarorlofs. Lögin voru þýðingarmikil réttarbót fyrir karlmenn og fólu í sér viðurkenningu á mikilvægu hlutverki þeirra sem hafði vantað af hálfu löggjafans. Það eru 20 ár síðan og ég fór að rýna það hvernig textinn leit út á sínum tíma. Þó að 20 ár séu í sjálfu sér ekki langur tími þá er áhugavert að sjá og rifja upp að fyrir 20 árum síðan náði þessi löggjöf ekki til foreldra sem eru af sama kyni. Tvær mæður áttu ekki sameiginlegt fæðingarorlof og það er, verð ég að viðurkenna, ótrúleg tilhugsun í dag að svo hafi verið.
Öll Norðurlöndin hafa fært foreldrum 12 mánaða fæðingarorlof og þessi breyting er þess vegna bæði tímabær og mjög jákvæð. Ísland hefur rekið lestina að þessu leyti. Í Svíþjóð er fæðingarorlof reyndar 15 eða 16 mánuðir, ég man nú ekki hvort það er og í mínum huga ætti það að vera markmiðið til lengri tíma litið, að þeir foreldrar sem það vilja gæti fengið lengra fæðingarorlof en 12 mánuði. Í því felst stuðningur við barnafólk og heilbrigð fjölskyldupólitík að mínu mati. En það er framtíðarmúsík og ekki tímabær umræða og ekki raunhæf út frá efnahagslegum aðstæðum okkar núna.
Núna skiptir hins vegar miklu máli að tekjuhámarkið verði hækkað því að ég trúi því, og það styðja nú gögn, að ef fjölskyldur fengju betri stuðning myndu flestir foreldrar vilja fullnýta sér það fæðingarorlof sem þeim býðst. Hámarksgreiðsla fæðingarorlofs núna er 65% af meðalheildarlaunum karlkyns sérfræðinga með háskólamenntun en 80% af meðalheildarlaunum kvenna í sama flokki. Það er mikilvægt að hækka tekjuhámarkið þannig að fjölskyldur verði ekki fyrir miklu tekjufalli við það að nýta þennan rétt. Hvatinn er vitaskuld í þá áttina að kona taki meira út frá þeim veruleika að meðalheildarlaun karla eru oft hærri en kvenna. Getur kannski verið að þeir og þau sem tala fyrir því að fæðingarorlofið eigi að vera framseljanlegt að fullu séu þessarar skoðunar, einfaldlega vegna þess að það kostar fjölskyldur minna að tekjulægra foreldrið taki lengra fæðingarorlof, að það kosti minna en að það foreldri taki orlof sem er tekjuhærra? Til þess að löggjöfin nái fram markmiði sínu þarf tekjumarkið að verða hærra þannig að fjölskyldur sjái sér fært að taka fullt fæðingarorlof.
Það er vitaskuld líka í þágu barna að foreldrar láti ekki hluta fæðingarorlofsins niður falla. Þess vegna finnst mér eðlilegt markmið að styðja betur við foreldra, betur við barnafólk, með því að hækka tekjuhámarkið en það myndi um leið styðja við jafnréttismarkmið frumvarpsins að tekjumarkið sé hærra. Að því leyti er frumvarpið í mínum huga vonbrigði. Viðreisn talar fyrir því og leggur fram tillögu í þá veruna að hækka tekjuhámarkið til að frumvarpið nái betur fram markmiðum sínum um betri stuðning við foreldra meðan á orlofi stendur og stuðla að því að foreldrar taki þannig fullt orlof og koma í veg fyrir eða draga úr tekjufalli — vitaskuld verður að vera á þessu eitthvert þak en það er slæmt að við séum komin á þann stað að hámarkið er einfaldlega of lágt — og tryggja þannig að feður jafnt sem mæður taki orlof og þess vegna viljum við sjá hámarkið fara úr 600.000 kr. í 800.000 kr. og sömuleiðis að fæðingarstyrkur verði hækkaður eins og breytingartillagan gerir nánar ráð fyrir.
Forsenda fæðingarorlofslaganna var nefnilega, og er enn þá, að réttur til launa í fæðingarorlofi er einstaklingsbundinn réttur. Þá er nálgunin líka sú að barn sem á tvo foreldra á rétt til að njóta samvista við þá báða á fyrstu mánuðum lífsins. Rannsóknir sýna líka fram á það að það er í þágu barnsins að svo sé. Jafn réttur er þess vegna til þess fallinn að tryggja annars vegar réttindi barnsins og hins vegar réttindi foreldranna til töku orlofs. En ég myndi í því sambandi, af því að hér er ég alltaf að tala um báða foreldra, líka koma inn á það að mér finnst mjög jákvætt, og raunar algjört grundvallaratriði, að sjá að í frumvarpinu sé komið til móts við þá foreldra sem standa einir, oftast nær mæður vitaskuld á þessum tímapunkti, að foreldri geti við tilteknar aðstæður þá fengið 12 mánaða fæðingarorlof. Það finnst mér gríðarlega mikilvægt og jákvætt að sjá og þessu hljótum við öll að fagna því það er auðvitað algerlega óboðleg staða að foreldrar sem standa einir, oftast nær mæður, séu í þeirri stöðu að njóta lakari kjara að þessu leyti. Ég er mjög ánægð með þessa breytingu og hún hefur gríðarmikla þýðingu, raunverulega þýðingu.
Ég nefndi að forsenda fæðingarorlofslaganna hafi á sínum tíma verið og sé áfram að rétturinn til greiðslna sé einstaklingsbundinn réttur og hugmyndafræðin þar sé sú að barn eigi rétt í þeim tilvikum þar sem foreldrarnir eru tveir til að njóta samvista við báða á fyrstu mánuðum lífsins. Þetta er réttur barns sem og foreldra en þessi einstaklingsbundni réttur styður ekki bara við fjölskylduna, barn og foreldra sem einingu, því að þetta atriði er síðast en ekki síst algjört grundvallaratriði fyrir það sem ég nefndi hér í upphafi, að þetta er, samhliða því að vera fjölskyldulöggjöf, jafnréttislöggjöf. Þetta atriði er grundvallaratriði fyrir jafnrétti kynjanna, jafnrétti á vinnumarkaði, jafnrétti inni á heimilum og það að við ætlum að ala börnin okkar upp við eðlilegt jafnrétti strax á fyrstu mánuðum lífs og áfram og að við gerum ráð fyrir því að mæður jafnt sem feður hverfi um tíma af vinnumarkaði vegna fæðingarorlofs, að launþegar geri ráð fyrir því, að atvinnurekendur geri ráð fyrir því, það sé eðlileg dýnamík að gert sé ráð fyrir því að konur jafnt sem karlar á barneignaraldri hverfi frá störfum um stundarsakir vegna þess að þau ætli að notfæra sér lög um fæðingarorlof.
Þegar lög um fæðingarorlof voru sett fyrir 20 árum var litið til Íslands fyrir framsækna löggjöf og af því getum við verið stolt og af því er ég mjög stolt. Þar var verið að ramma inn ákveðna pólitík sem aðrar þjóðir litu síðan til. Mér finnst mikilvægt að hafa það í huga í umfjölluninni núna um þetta frumvarp og að við horfum til þess, þegar við erum að fjalla um þetta frumvarp, að við erum að horfa á breiða mynd um umgjörð í kringum fjölskylduna og breiða mynd um jafnrétti í samfélaginu og að við séum minnug þess að árangur Íslands í jafnréttismálum náðist með markvissum aðgerðum og lagasetningu um það að stuðla að, tryggja og verja jafnrétti. Að 20 árum liðnum er staða Íslands í jafnréttismálum einfaldlega alls ekki þannig að það sé rétt eða tímabært að afnema sjálfstæðan rétt foreldra til fæðingarorlofs, alls ekki. Það myndi líklega framkalla þau neikvæðu áhrif að feður taki þetta orlof, og fái að taka það, í minna mæli. Það myndi veikja hlut mæðra á atvinnumarkaði, það myndi að öllum líkindum auka kynbundinn launamun — það færi gegn öllum rannsóknum ef það yrði ekki niðurstaðan — og það myndi skerða rétt barna til samvista við báða foreldra á fyrstu mánuðum ævinnar. Þetta eru stef sem við þekkjum frá fyrri tíð og þangað ættum við ekki að vilja fara. Ég hefði þess í stað haldið að eftir 20 ára farsæla reynslu af löggjöfinni ættum við núna að þora að stíga skrefið til fulls, færa hvoru foreldri um sig jafnan rétt. Það eru mér, verð ég að viðurkenna, vonbrigði að svo sé ekki. Það eru um leið vonbrigði að ekki standi til að hækka tekjuhámarkið frekar. Þetta tvennt, lenging orlofs og hærra tekjumark, þarf að fara saman til að löggjöfin verði foreldrum farsæl, til að löggjöfin verndi hagsmuni barna og til þess að ná fram grundvallarmarkmiðum um jafnrétti kynjanna.
Að því sögðu þá fagna ég því hér að nú sé verið að lengja orlofið í 12 mánuði og í samhengi hlutanna er hægt að fagna því að við séum ekki að horfa fram á það stóra og alvarlega bakslag sem sumar hugmyndir hefðu leitt til, samtalið um fjóra, fjóra, fjóra. Ég hefði viljað sjá útfærsluna þannig að við hefðum stigið skrefið til fulls en mun styðja þetta mál.