fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Við erum hér í 2. umr. að fjalla um fæðingarorlofsfrumvarp félagsmálaráðherra sem hefur verið í vinnslu í velferðarnefnd og langar mig til að þakka nefndarmönnum fyrir þá vinnu sem hefur farið fram þar og þær umræður. Við höfum fengið til okkar fjölda gesta, farið yfir margar umsagnir og margar skoðanir hafa verið viðraðar, og hér er komin niðurstaða. Ég fagna því sérstaklega og við getum fagnað því af einlægni að 12 mánaða fæðingarorlof sé að nást núna um áramótin, jöfn skipting milli foreldra og rétturinn skiptist þannig að sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig er sex mánuðir en hvort foreldri getur framselt sex vikur af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins. Í upphaflegu frumvarpi er bara gert ráð fyrir mánuði en hér er hálfum mánuði bætt við þann sjálfsagða rétt að framselja.
Það er staðreynd að það hefur verið svolítil togstreita að ná þessari lendingu en hún er viðunandi svo að ég gat skrifað undir. Ég tel það mikilvægt að í breytingartillögum meiri hlutans sé að finna endurskoðunarákvæði og að innan tveggja ára frá gildistöku laga þessara skuli horft til þess hvernig hefur tekist að uppfylla markmið laganna sem er að jafna rétt foreldra á vinnumarkaði. Það er líka svo mikilvægt að við náum þeim jafnréttissjónarmiðum. Þess vegna er gott að hafa þessi endurskoðunarákvæði inni til að geta svo farið yfir þetta því að það er eins og við viljum ekki trúa því núna hversu miklu máli þetta skiptir. Frelsið er yndislegt, ég geri það sem ég vil, er sagt og ég er alveg sannfærð um og ætla bara treysta því að fólk á barneignaraldri nái að skipta þessum sex vikum þannig að skiptingin verði jöfn hvað þetta varðar.
Eitt ár í lífi barns er mikilvægt og fyrsta árið er langmikilvægast. Það er því stórt skref fyrir börn og foreldra að ná þessu marki. Meginmarkmiðið er að ryðja úr vegi eldri viðhorfum, að faðirinn beri meginábyrgð á efnahag heimilisins með tekjuöflun sinni. Niðurstöður rannsókna á íslenska fæðingarorlofskerfinu benda m.a. til að feðrakvótinn svokallaði, eða sá fæðingarorlofsréttur sem einungis feður geta nýtt, sé rétt stefna til að ná fram markmiðum laganna um fæðingar- og foreldraorlof um að tryggja réttindi barna til samvista við báða foreldra og gera foreldrum þannig kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Þess vegna kemur mér mikið á óvart breytingartillaga frá Miðflokknum sem hv. þm. Anna Kolbrún Árnadóttir flutti. Hún var formaður aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti kynjanna fyrir nokkrum árum sem skilaði skýrslu og ágætri vinnu. Þar á meðal er lyft undir það að réttur karla eða feðra eða hins foreldrisins til foreldraorlofs og fæðingarorlofs verði tryggður. Eitthvað hefur því gerst á þessum árum.
En mig langar líka til að lyfta hér upp og tala um nokkuð sem hefur kannski bara komið fram í máli framsögumanns, þ.e. sérstakan styrk vegna skerts aðgengis að fæðingarþjónustu. Það finnst mér alveg gríðarlega mikilvægt. Þetta eru aukin réttindi til kvenna á landsbyggðinni. Í 43. gr. kemur fram að sé barnshafandi foreldri nauðsynlegt að mati sérfræðilæknis að dvelja fjarri heimili sínu í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barns sé heimilt að greiða foreldrunum sérstaklega styrk í allt að 14 daga fyrir áætlaðan fæðingardag barns, enda dvelji foreldrið fjarri heimili sínu þá daga. Hér erum við í meiri hlutanum að breyta þessu til að það verði 14 dagar fyrir áætlaðan fæðingardag. Eins og við vitum öll getur fæðingin verið svolítið færanleg. Móðirin er yfirleitt komin á fæðingarstað tveimur dögum fyrir áætlaðan fæðingardag og síðan getur fæðingin kannski dregist um allt að hálfan mánuð. Þá er móðirin farin að taka af fæðingarorlofi sínu eftir áætlaðan fæðingardag. Við ætlum að breyta því þannig að miðað verði við áætlaðan fæðingardag.
Það er einungis hægt að fæða á örfáum stöðum á landinu. Þá er staðreynd að það eru verulegar vegalengdir í nauðsynlega fæðingarþjónustu, t.d. á sunnanverðum Vestfjörðum. Því er ekki hyggilegt að kona bíði heima fram á síðustu stundu með að koma sér á fæðingarstað, sérstaklega að vetri til. Já, það er ekki bara María mey sem þurfti að fara á milli byggðarlaga til að fæða barn heldur eru margar landsbyggðarkonur í þeim sporum á Íslandi. Og ekki bara konur sem eru fjarri fæðingarhjálp því að ef um áhættufæðingu er að ræða verða þær að færa sig nær öruggari fæðingarþjónustu. Þetta gæti því átt við konur á flestum stöðum á landinu, barnshafandi foreldra sem er gert að dvelja nærri fæðingarþjónustu frá og með 38. viku meðgöngu. Þá gæti viðkomandi verið gert að fara fyrr af stað af heimili sínu ef fyrir hendi eru aðstæður sem kalla á t.d. áhættumeðgöngu. Þá er ekki óalgengt að meðganga geti varað allt að 42 vikum, eins og ég talaði um áður, og því er heimild hér til að greiða barnshafandi foreldrum sérstakan styrk vegna þeirra daga sem meðgangan varir fram yfir áætlaðan fæðingardag, til viðbótar við nefnda 14 daga. Þá leggur meiri hlutinn til þá breytingu að heimilt verði að veita sérstakan styrk allt að 28 daga fyrir áætlaðan fæðingardag sé um fjölburameðgöngu að ræða með vísan til meðgöngulengdar með tvíbura sem er 36 vikur á Íslandi og er almennt stefnt að fæðingu í kringum 36.–38. viku ef meðganga gengur vel. Þetta er réttlætismál sem hefur lengi verið á dagskrá og ekki komist endanlega á. Ýmsar sögur hafa verið af konum sem hafa þurft að dvelja fjarri heimili. Ég man eftir því að fyrir tveimur, þremur árum voru vestur á Ísafirði tvær tvíburamæður og voru settar, held ég, bara rétt fyrir jólin. Svo þurftu þær náttúrlega að vera nokkra daga eftir fæðingu hér í borginni. Þetta þýðir að konur dveljast fjarri fjölskyldum sínum um þennan tíma.
Virðulegi forseti. Svo að ég komi nú aftur að meginmarkmiði frumvarpsins er það náttúrlega tvíþætt, annars vegar að tryggja barni samvistir við foreldra sína í 12 mánuði, og allir eru sammála um það, svo hins vegar að jafna rétt foreldra til töku á fæðingarorlofi. Við eigum auðvelt með að sjá fyrir okkur yndislegar samverustundir foreldra og barna þar sem þeir draga að sér ilm af hvítvoðungnum og styrkja tilfinningatengsl sem lifa út ævina. Við viljum börnum okkar það besta. Börn af báðum kynjum og tilgreindum eiga að hafa sama rétt í þessu samfélagi og líka á vinnumarkaði. Við erum líka að hugsa um framtíð þess barns sem er að koma í heiminn. Hvernig ætlum við að móta þau réttindi þegar barnið er komið til fullorðinsára, komið á vinnumarkað og fer að fæða börn? Við erum að hugsa fram í tímann, ekki bara til dagsins í dag og hvað þá heldur aftur til þess tíma þegar konur og karlar höfðu ekkert fæðingarorlof. Fæðingarorlofsréttur er mikilvægur inn í jafnréttisbaráttu á vinnumarkaði. Meðan jafnri skiptingu er ekki náð náum við ekki launajafnrétti milli kynjanna. Við skulum líka tala um jafnrétti í lífeyrismálum en þar á jafnrétti til fæðingarorlofs stóran þátt. Þegar barátta fyrir fæðingarorlofi hófst voru þessir þættir hafðir að leiðarljósi.
Virðulegi forseti. Þetta er stór áfangi og stórt jafnréttismál. Í sameiginlegri umsögn m.a. prófessors í félagsráðgjöf og prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands um frumvarpið kemur m.a. fram að lenging á rétti foreldra til fæðingarorlofs, sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu, sé tímamótaáfangi til hagsbóta fyrir fjölskyldur og í þágu hagsmuna barna og foreldrajafnréttis. Með jafnri skiptingu fæðingarorlofs komumst við skrefi nær jafnrétti kynja á vinnumarkaði, bæði hvað varðar laun og lífeyrisréttindi. Við eigum ekkert að gefa eftir í þeirri baráttu, áfram heldur hún. Við erum með jafnan rétt núna þótt það séu þessar framseljanlegu sex vikur. Eftir tvö ár getum við farið yfir stöðuna, hvernig þetta hefur komið út. Ég er alveg sannfærð um að þetta er að verða meira norm eins og hefur gerst í þessi 20 ár síðan feðraorlofið kom til sögunnar. Feður taka meiri þátt í bæði uppeldi barna sinna og heimilisstörfum. Þannig náum við markmiðinu, þetta tikkar inn, kannski ekki allt í einu en við erum að sjá gríðarlega breytingu. Mér finnst ekkert langt síðan ég var að eiga mína krakka en þessi breyting sem hefur tikkað inn með feðraorlofinu er gríðarleg og skiptir ótrúlega miklu máli. En ég get líka tekið það fram að í fullkomnum heimi myndi ég alveg vilja sjá tólf, núll. Ég veit ekki hvort ég get haldið því fram að ég eigi eftir að sjá það en þangað til skulum við jafna réttinn.