151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[00:21]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta velfn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur út í þá ákvörðun stjórnarliða í velferðarnefnd að tryggja ekki rétt barna og foreldra þegar hitt foreldrið sætir nálgunarbanni gagnvart foreldri. Það kemur fram í nefndaráliti meiri hluta, með leyfi forseta:

„Vakin er athygli á að nálgunarbann leiðir ekki eitt og sér til tilfærslu á rétti til fæðingarorlofs heldur er forsenda tilfærslu að nálgunarbannið geri því foreldri sem banninu sætir í raun ókleift að nýta þann rétt sem það á til töku fæðingarorlofs innan 24 mánaða frá fæðingu barns …“

Þá segir hér líka:

„Miðað við að foreldrið sem sætir banninu eigi rétt á sex mánaða fæðingarorlofi getur þar af leiðandi ekki komið til tilfærslu samkvæmt ákvæðinu nema nálgunarbann sé í gildi síðustu sex mánuði þess tíma, þ.e. þegar liðnir eru á bilinu 18–24 mánuðir frá fæðingu barns …“

Ég vil spyrja hv. þingmann út í þetta, hvernig hún sér fyrir sér að foreldri sem hefur mátt sæta grófu ofbeldi, mögulega ítrekuðu, og hótunum, þannig að ákæruvald og dómstólar hafa fallist á beiðni um nálgunarbann sem er verulega íþyngjandi aðgerð, eigi að tryggja rétt barns síns til fæðingarorlofs og tryggja einhverja samfellu í umgengni og umönnun barnsins í frumbernsku barnsins. Hvernig sér þingmaðurinn fyrir sér að vernda þetta litla barn og það foreldri sem hefur mátt sæta grófu ofbeldi?