151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[00:24]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gerast neinn sérfræðingur í þessum málum en við í meiri hlutanum og framsögumaður málsins höfum haft samband við lögfræðinga, bæði á nefndasviði, í ráðuneytinu og fleiri, og teljum að við séum með þessari nálgun okkar eiginlega að fara á sama stað og hv. þingmaður vill fara í þeim málum. Mér skilst að niðurstaðan sé sú sama. Ég ætla ekki að gerast sérfræðingur og fara í togstreitu með það en þetta er það sem mér skilst, að sú breyting sem við erum með gefi sömu niðurstöðu, þótt orðalagið sé kannski eitthvað öðruvísi, að ef foreldri er gert að sæta nálgunarbanni gagnvart barni eða gagnvart hinu foreldrinu þá sé barnið verndað. Ef móðirin er beitt ofbeldi, skulum við segja, og er með barnið þegar þessum sex mánuðum lýkur þá getur hún sótt um áframhaldandi forræði yfir barninu. Það er hægt að sækja þann rétt til dómstóla að staðfesta að það foreldri sem beitir ofbeldi muni sæta nálgunarbanni gagnvart barninu. Þetta er alla vega sú niðurstaða sem ég tel að hafi fengist. Ég skal ekki gerast sérfræðingur í þessu máli en þeir sérfræðingar sem ég hlusta á halda að þetta sé sama niðurstaða og hv. þingmaður er að tala um.