151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[00:50]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér enn eitt mikilvægt skref í jafnréttismálum, fæðingarorlof, lengingu fæðingarorlofs. Þetta á sér langa sögu, langa vegferð. Það var fyrst í kringum 1980 sem var lögfest þriggja mánaða fæðingarorlof og 1986 fór það í sex mánuði. Sjálfstæður réttur giftra feðra til að taka fæðingarorlof kom 1998 og síðan hafa réttindi feðra aukist, sem betur fer. Lögin árið 2000 gjörbreyttu aðstæðum í þessari löggjöf og með tilkomu feðraorlofs var þá fyrst fyrir alvöru farið að hafa jafnrétti kynjanna að leiðarljósi og rétt föður og barns til samvista til að auðvelda foreldrum að tvinna saman vinnu og fjölskylduábyrgð.

Við höfum náð alveg ótrúlegum árangri í þessum málum á undanförnum árum og sem Sjálfstæðismaður get ég litið stoltur yfir farinn veg og þátttöku míns flokks í þeim málum. Það var því í raun hálfhjákátlegt í ljósi þess að hlusta hér á hv. þingmann og formann Viðreisnar, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, gera að gera lítið úr þátttöku Sjálfstæðisflokksins í jafnréttismálum í gegnum tíðina. Hjá Alþjóðaefnahagsráði er gefin út skýrsla sem kom út síðast í desember 2019 og þá í 14. sinn. Skýrslan hefur enska heitið „Global gender gap report“. Þar er metin frammistaða 153 ríkja á sviði kynjajafnréttismála á fjórum meginsviðum; stjórnmála, menntunar, atvinnu og heilbrigðis. Ísland er sem fyrr í forystu meðal þjóða, í fyrsta sæti með 87,7 stig. Næstu lönd sem á eftir okkur koma eru Noregur, Finnland og Svíþjóð. Með öðrum orðum er samkvæmt niðurstöðu úttektar þessara alþjóðlegu samtaka í 153 löndum Ísland fánaberi meðal þjóða. Það er sá árangur sem við höfum náð í jafnréttismálum á mjög breiðum grunni. Það að halda því svo fram í ræðustóli Alþingis að Sjálfstæðisflokkurinn eigi engan þátt í því, eins virkur og hann hefur verið við stjórn landsins á undanförnum mörgum árum, er auðvitað ekkert annað en óhróður þaðan sem síst skyldi koma, frá hv. þingmanni sem í 14 ár sat á þingi fyrir þennan flokk og gegndi þar trúnaðarstöðu og var treyst til æðstu metorða. Þetta tel ég tilefni til að fara yfir.

Hér er enn eitt mikilvægt skref stigið á vegferð sem í sjálfu sér lýkur aldrei. Þetta skref mun marka enn ein tímamótin, vera enn einn minnisvarðinn á þessari löngu vegferð sem hefur staðið undanfarin ár og mun standa áfram. Hér eru reifuð ýmis skref til að ganga lengra og ég held að við getum öll verið sammála um að það gæti verið æskilegt. Þetta fer svo sem allt eftir aðstæðum líka hverju sinni. Við myndum vilja geta gert svo miklu betur í mörgum málaflokkum en við erum að stíga mikilvægt skref. Þau skref sem talað er um að við þurfum að stíga á næstu árum eru svo sem greiðslumarkið, þ.e. þakið á greiðslunum, það þurfi að hækka. Þegar það var hærra um tíma leiddi það til þess að feður tóku meiri þátt í fæðingarorlofi þannig að þetta hlýtur að vera eitthvað sem við þurfum að skoða. Í þessu frumvarpi er gert ráð fyrir endurskoðun innan tiltölulega skamms tíma til þess að meta áhrifin og þá uppfæra og reyna að ná enn betri árangri. Við þurfum líka að huga að lækkandi fæðingartíðni í landinu. Við verðum að horfa til þess að kerfið geti verið hvetjandi til að örva barneignir. Það er staðreynd að við þurfum að horfa til þess að það verði til, eins og einhverjir hafa kallað það, einhvers konar þriggja barna módel, hvatinn verði til þess að fjölgunin sé eðlileg.

Að mínu mati, virðulegur forseti, er frelsi lykill að auknu jafnrétti. Foreldrar eiga að hafa þetta frelsi og að mínu mati birtist ákveðin forræðishyggja í þeim málflutningi þar sem við þurfum að skylda fólk til að haga málum sínum með ákveðnum hætti, þar með þá í einhverjum tilfellum jafnvel að draga úr möguleikum fjölskyldna til að nýta að fullu þann tíma sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi, enda er það svo að frá almenningi og fullt af fagaðilum hafa komið ábendingar um það og gagnrýni á þetta frumvarp og ábendingar um að þetta frelsi eigi að vera til staðar. Nýleg skoðanakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Geðvernd sýnir til að mynda að tveir þriðju hlutar hjónafólks kjósa að hafa meira frelsi, tveir þriðju, þetta er yfirgnæfandi. Við höfum sömu athugasemdir frá landlæknisembættinu, Ljósmæðrafélaginu, Barnaheill, þannig að þó að það sé verið að vitna í sérfræðinga, eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson fór hér yfir áðan, og er í sjálfu sér ágætt innlegg, við eigum auðvitað að hlusta á sérfræðinga en það er ekki allt óumdeilt sem þaðan kemur og það getur í sjálfu sér enginn hallmælt því eða mótmælt því að það séu sérfræðingar sem eru innan borðs hjá landlæknisembættinu, Ljósmæðrafélaginu og Barnaheill í þessum málaflokki, svo eitthvað sé nefnt. En sérfræðingana getur líka greint á og þá er það okkar að vega og meta. Þegar upp er staðið eru það kannski foreldrarnir sjálfir sem eru bestu sérfræðingarnir og mestu sérfræðingarnir í eigin málum, geta best metið sjálfir hvað hentar í hverju tilfelli, þó að ég taki algjörlega undir það, eins og ég kom inn á áðan, að við þurfum að huga að því í fullri alvöru að það séu til staðar hvatar í kerfinu til að feður nýti sér rétt sinn til fæðingarorlofs. Það togast aðeins á í þessu líka réttur barnsins til að þessir 12 mánuðir séu fullnýttir af foreldrunum.

Menn hafa verið uppteknir af því hér, einhverjir, að það sé ágreiningur hjá meirihlutaflokkum þingsins um útfærslu í þessu máli. Já, það er alveg hægt að segja það. Það hefur ekkert farið leynt. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur fyrir hönd okkar margra Sjálfstæðismanna haldið þeim skoðunum á lofti sem við aðhyllumst mörg í þessu, þ.e. aukið frelsi foreldranna til að ákveða sjálfir hvernig þeir skipta þessum rétti innan fjölskyldunnar. Það kemur því ekki neinum á óvart í sjálfu sér. En markmið okkar er það sama. Við erum öll með sama markmið í þessu máli og það er mikilvægast. Það er mikilvægast að við skulum vera að ná því fram að við erum að lengja fæðingarorlof í 12 mánuði. Það er skrefið. Það er árangur þar sem við getum öll sameinast um. Og enn og aftur er Sjálfstæðisflokkurinn stoltur af því að vera virkur þátttakandi í þeirri vinnu í jafnréttismálum, einhverju stærsta skrefi sem stigið hefur verið í jafnréttismálum sennilega. Ég hugsa að það megi segja að af öllum þeim málum sem snúa að jafnrétti sé fæðingarorlofið hvað gildishlaðnast í því. Við þurfum því að láta þingið í raun gera það upp hvernig niðurstaðan verður í þessu, mánuður til eða frá eða eitthvað slíkt. Við höfum rætt um ákveðna málamiðlun í okkar röðum sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason hefur borið fram. Það er ákveðin málamiðlun sem náðist síðan í nefndinni. Störfin hér eru auðvitað málamiðlanir oft og tíðum og svo tökum við þetta til afgreiðslu. Eftir stendur að fæðingarorlofið verður 12 mánuðir. Það er aðalatriðið.

Við þurfum að halda vöku okkar, virðulegi forseti, í þessum málaflokki til þess að halda áfram að vera fánaberar meðal þjóða í jafnréttismálum. Það er alveg hægt að taka undir með hv. þingmanni sem talaði hér á undan um að einhver skref geti leitt til þess að við færumst aftur á bak. Það viljum við ekki. Við viljum vera áfram fánaberar í forystu meðal þjóða og til þess þurfum við að vera á tánum. Ég tel að endurskoðunarákvæðið sem er í þessum lögum sé mikilvægur steinn í þeirri vegferð, varða í þeirri vegferð.

Ég ætla svo að lokum í þessari stuttu yfirferð minni að vitna aðeins í ræðu hv. þm. Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur sem talaði hér áðan og sló svolítið annan tón í þessu gagnvart flokknum mínum, ég tók því þannig, þegar hún fór yfir það hvað réði því að við erum í forystu meðal þjóða í jafnréttismálum og það væri framsækin lagasetning. Við hefðum búið til samfélag þar sem jafnrétti ríkir og löggjafinn gæti þegar kemur að þessum málaflokki klappað fyrir sjálfum sér. Löggjafinn getur klappar fyrir sjálfum sér og það held ég að við getum gert á morgun þegar við erum búin að samþykkja þetta mál. Ég held að við getum klappað fyrir þinginu og höldum síðan áfram á vegferðinni.