151. löggjafarþing — 41. fundur,  18. des. 2020.

fæðingar- og foreldraorlof.

323. mál
[01:26]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mikið var fjallað um þetta í hv. velferðarnefnd og mikið er fjallað um það í nefndaráliti meiri hlutans. Það eru gerðar breytingar varðandi þessa millifærslu þegar um nálgunarbann er að ræða. Ég tel því að við höfum brugðist við þessum áhyggjum. Ég vil þó segja að þótt hafi gengið á með ofbeldissambandi foreldra þá er ekki þar með sagt að barnið hafi ekki rétt til þess að mynda tengsl við það foreldri sem sætir nálgunarbanninu. Það þarf ekki að vera að barnið sé í hættu eða eigi á hættu að verða fyrir ofbeldi þar. Hér erum við með fagaðila og barnaverndarkerfið og lögreglu, þar sem ég starfaði líka og tók þátt í svoleiðis atriðum, til að tryggja samvistir beggja foreldra við barn, undir vissum kringumstæðum undir eftirliti eða með milligöngu fagaðila og annað slíkt.

Öll umræða í þessu máli, um skiptingu og annað, hefur snúist um tengsl og rétt barnsins til að mynda tengsl við báða foreldra og hljóta umönnun beggja foreldra. Ég held að það sé sem betur fer í fáum tilfellum sem reynir á þetta og ég held að við eigum ekki að alhæfa að það sé útilokað í öllum tilfellum að foreldri sem sætir nálgunarbanni geti hugsað um barnið.