fæðingar- og foreldraorlof.
Herra forseti. Hér er ekki um að ræða það að slíta tengsl eða tálma eða neitt slíkt. Við erum að ræða um rétt til töku fæðingarorlofs í sex mánuði með barni eftir að hafa beitt hitt foreldri barnsins svo grófu ofbeldi og hótunum að nálgunarbann er eina leiðin til að vernda foreldri og barn.
Mig langar aðeins að setja upp þetta dæmi þar sem við erum að tala um barn á fyrstu sex mánuðum æviskeiðsins þar sem þetta á sér mögulega stað. Þetta snýst um hvort það barn fær að njóta áframhaldandi fæðingarorlofs eða þarf að fara í einhverja gæslu eftir sex mánuði vegna þess að hitt foreldrið er með nálgunarbann. Eins og hv. þingmaður svaraði þessu rétt áðan var eins og hann teldi að barnavernd gæti tryggt slíka umönnun hjá foreldri undir eftirliti þannig að það geti sinnt meginumönnunarhlutverki í sex mánaða fæðingarorlof með barni sínu. Það er engin stofnun á Íslandi sem getur sinnt slíku eftirlitshlutverki. Þegar verið er að byggja upp umgengni og samband milli foreldris og barns eftir ofbeldi eða þegar þarf að hafa eftirlit með umgengni er þetta kannski umgengni á hálfs mánaðar fresti í tvo klukkutíma, ekki á hverjum degi í átta klukkutíma og svo að hitt foreldrið geti sótt vinnu. (Forseti hringir.) Ég held að það sé einhver misskilningur á ferð og það er alveg sama hve oft (Forseti hringir.) er komið hingað upp og vísað í einhver lagaákvæði sem eiga að vera þarna, ekkert af því tryggir þetta barn og rétt þess.