fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Það er nú þannig að foreldrar hafa 24 mánuði til að nýta sinn sex mánaða rétt, það þarf ekki endilega að taka hann út á fyrstu sex mánuðum í lífi barnsins. Við verðum að setja þetta í rétt samhengi, þetta er 24 mánaða tímabil. Það er algerlega skýrt í lögunum að ef foreldri sætir nálgunarbanni gagnvart barninu þá færist rétturinn yfir til hins foreldrisins og ef foreldri er ófært um að annast barnið vegna nálgunarbanns gangvart hinu foreldrinu þá færist rétturinn líka yfir samkvæmt breytingartillögu meiri hlutans. Þannig að þó að viðkomandi hafi fengið á sig nálgunarbann vegna ofbeldis gegn hinu foreldrinu þá er ekki útilokað að barnið geti verið í umsjón viðkomandi án þess að vera í hættu og þá er þetta bara mjög sterkur réttur. En ef barnið og velferð þess er í einhverri hættu þá munu þau lagaákvæði sem eru bæði í meirihlutaálitinu og breytingartillögu meiri hlutans og þegar í frumvarpinu tryggja það. Mér finnst þetta skipta miklu máli. Þetta er 24 mánaða viðmið og það stendur alveg skýrt að ef það fer gegn hagsmunum barnsins að vera í sex mánaða umönnun þess foreldris sem sætir nálgunarbanni á þessu 24 mánaða tímabili er hægt að fella réttinn niður.